Ofar
Ofar
Ofar

Tæknistarf á tölvuverkstæði Ofar

Ofar leitar að öflugum einstakling með brennandi áhuga á tækni og þjónustu á verkstæði fyrirtækisins á Köllunarklettsvegi 8.

Ef þú þrífst best þar sem mikið er um að vera og vilt vinna á líflegum vinnustað, þá er þetta starfið fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Viðgerðir og íhlutaskipti: Greining og viðgerðir á PC fartölvum, borðtölvum og tengdum búnaði.
  • Villuleit og bilanagreining: Greining og lausnir á vélbúnaðar- eða hugbúnaðarvillum.
  • Hugbúnaðarvinna: Uppsetning og fínstilling á Windows stýrikerfum, reklum og algengum hugbúnaði.
  • Fjölbreytt þjónusta: Vinna á verkstæði og í gegnum fjarþjónustu, vitjanir til viðskiptavina þegar þörf krefur.
  • Ráðgjöf og samskipti: Upplýsingagjöf til viðskiptavina vegna bilanagreininga og viðeigandi ráðgjöf veitt.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þekking á vélbúnaði: Reynsla af því að meðhöndla íhluti og setja saman tölvur.
  • Windows þekking: Góð þekking á Windows umhverfinu og helstu tæknilausnum.
  • Menntun/Vottanir: Stúdentspróf, iðnnám eða tæknilegar vottanir (t.d. CompTIA A+) eru mikill kostur.
  • Sjálfstæði: Hæfni til að leita lausna á eigin spýtur þegar flókin mál koma upp.
  • Þjónustulund: Geta til að útskýra tæknileg atriði á mannamáli af yfirvegun og jákvæðni.

Hlutverk Ofar er að styðja við fyrirtæki, stofnanir og endursöluaðila með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval og þjónustu í hljóð- og myndlausnum, prentlausnum, ásamt tæknilausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði og fleira.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að læra meira um vinnustaðinn.

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar nk.

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.

Advertisement published3. February 2026
Application deadline15. February 2026
Language skills
No specific language requirements
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.CompTIA Network+PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Computer repairsPathCreated with Sketch.WindowsPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags