
Sólar
Sólar ehf er eitt stærsta ræstingafyrirtæki landsins með tæplega 500 starfsmenn. Gott starfsumhverfi er lykillinn að árangri og leggur fyrirtækið ríka áherslu á jákvæð samskipti, samheldni og faglegan vöxt. Sólar er leiðandi á sviði umhverfismála og var fyrst ræstingafyrirtækja til að hljóta heimild til að nota Svaninn, norræna umhverfismerkið. Fyrirtækið leggur mikinn metnað í þjálfun starfsfólks og öflugt gæðaeftirlit tryggir framúrskarandi þjónustu.

Sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs
Sólar leitar að sviðsstjóra sölu- og markaðssviðs sem ber ábyrgð á heildarstýringu sölu- og markaðsmála fyrirtækisins. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem viðkomandi mun leiða áframhaldandi vöxt Sólar, styrkja viðskiptasambönd og móta skýra markaðs- og sölustefnu í takt við framtíðarsýn fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri og uppbyggingu sölu- og markaðssviðs
- Móta og innleiða sölu- og markaðsstefnu sem styður við vöxt fyrirtækisins
- Leiða teymi og tryggja skýra stefnu og samræmda framkvæmd
- Þróun og viðhald viðskiptasambanda við hagsmunaaðila
- Greining á markaði, samkeppni og tækifærum til vaxtar
- Eftirlit með árangri, mælingum og markmiðasetningu
- Náin samvinna við önnur svið, m.a. þjónustu og rekstur
- Framþróun í notkun gagna og tækni til að efla sölu og markaðsstarf
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, markaðsfræði eða sambærilegt
- Reynsla af stjórnun í sölu- og/eða markaðsumhverfi
- Reynsla af stefnumótun og rekstri
- Leiðtogahæfni og hæfni til að byggja upp árangursdrifið teymi
- Framúrskarandi samskipta- og samningahæfni
- Greiningarhæfni og geta til að vinna með gögn og mælikvarða
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund
Advertisement published22. May 2026
Application deadline5. June 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Dalshraun 6, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Söluráðgjafi nýrra sölurása
Nói Síríus

Verkstjóri - Bílaþjónusta
N1

Sveitarstjóri
Sveitarfélagið Strandabyggð

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - Aðstoðarskólastjóri
Reykjanesbær

Marketing Associate / Markaðsfulltrúi
The Reykjavik EDITION

Forstöðumaður Stefnu og fjárfestinga
Landsnet

Forstöðumaður Lögfræði og stjórnkerfa
Landsnet

Framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags
Landsnet

Nettó Ísafirði - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó

Sölu- og þjónustufulltrúi óskast til Vinnupalla
Vinnupallar

Sölustjóri
Kling

Forstöðumaður vörumerkja og markaðsmála
Íslandshótel