Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð

Sveitarstjóri

Starf sveitarstjóra Strandabyggðar er laust til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að leiða þróun og daglegan rekstur sveitarfélagsins og takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Áhersla er lögð á áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins, eflingu atvinnulífs og góða þjónustu við íbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
  • Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur funda og upplýsingagjöf
  • Samskipti við íbúa, samstarfsaðila, stofnanir, fyrirtæki og samtök
  • Að gæta hagsmuna Strandabyggðar út á við og vera talsmaður sveitarfélagsins
  • Stefnumótun og mótun framtíðarsýnar í lykilmálaflokkum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
  • Áhugi á uppbyggingu samfélagsins og markaðssetningu
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum
  • Mjög góð tjáningarhæfni í ræðu og riti
  • Reynsla af stefnumótun og kynningar-/ímyndarmálum er kostur
Advertisement published1. June 2026
Application deadline15. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík
Type of work
Professions
Job Tags