
Skagaströnd
Skagaströnd er kraftmikið og fjölskylduvænt samfélag sem býður upp á mikil lífsgæði í einstöku umhverfi. Fjölbreytt tækifæri til útivistar eru í næsta nágrenni, hvort sem um er að ræða gönguferðir, fjallgöngur, golf eða sjósund. Höfnin er hjarta bæjarins og setur sterkan svip á samfélagið og endurspeglar mikilvægi sjávarútvegs fyrir sveitarfélagið. Á Skagaströnd er einnig góð aðstaða til íþrótta og tómstunda auk öflugs tónlistarskóla.

Sveitarstjóri
Sveitarfélagið Skagaströnd óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi sveitarstjóra til að leiða daglegan rekstur sveitarfélagsins og áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í nánu samstarfi við íbúa, kjörna fulltrúa og starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri sveitarfélagsins og framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
- Yfirumsjón með stjórnsýslu, fjármálum og mannauðsmálum
- Undirbúningur funda sveitarstjórnar og fagleg upplýsingagjöf
- Vinnur náið með sveitarstjórn, nefndum og starfsfólki sveitarfélagsins
- Samskipti við íbúa, atvinnulíf, stofnanir og aðra hagaðila
- Umbóta- og þróunarvinna í þágu samfélagsins
- Hagsmunagæsla sveitarfélagsins út á við
Menntunar- og hæfniskröfur
- Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og mannahaldi
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum er æskileg
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
- Frumkvæði, drifkraftur og skipulagshæfni
- Mjög góð færni í íslensku, bæði í ræðu og rituðu máli
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af stefnumótun, kynningar- og markaðsmálum er kostur
- Gott orðspor og hreint sakavottorð
Advertisement published15. June 2026
Application deadline30. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Túnbraut 1-3 1R, 545 Skagaströnd
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
Sveitarfélagið Skagafjörður

Stapaskóli – Skólastjóri
Reykjanesbær

Forstöðumaður nýsköpunar
Landsvirkjun

FORSTÖÐUMAÐUR FRÍSTUNDASTARFS BARNA OG UNGLINGA Í ÞORLÁKSHÖFN AFLEYSINGARSTARF SKÓLAÁRIÐ 26-27
Sveitarfélagið Ölfus

Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO)
Rekstrarsvið - Keahótel ehf.

Forstöðumaður í málaflokki heimilislausra hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sveitarstjóri Reykhólahrepps
Reykhólahreppur

Framkvæmdastjóri
Launafl

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet

Forstöðumaður kerfisþróunar og rannsókna
Landsnet

Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fjarðabyggð

Seltjarnarnesbær - launafulltrúi
Seltjarnarnesbær