Sveitarfélagið Ölfus
Sveitarfélagið Ölfus

FORSTÖÐUMAÐUR FRÍSTUNDASTARFS BARNA OG UNGLINGA Í ÞORLÁKSHÖFN AFLEYSINGARSTARF SKÓLAÁRIÐ 26-27

Í starfinu felst að stýra starfi í Frístundaheimili Grunnskólans og stýra starfi í Félagsmiðstöðinni Svítunni ásamt umsjón með sumarfrístund.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst eftirfarandi:

·         Stýra starfi í Frístundaheimili Grunnskólans. Í Frístund er þjónusta fyrir börn í 1. – 4. bekk eftir að skóla lýkur á daginn. Hlutverk frístundaheimilis er að bjóða uppá skapandi umhverfi þar sem starfshættir einkennast af frjálsum leik og skipulögðu starfi.

·         Stýra starfi í Félagsmiðstöðinni Svítunni. Í félagsmiðstöðinni er boðið upp á félagsstarf fyrir börn og unglinga á aldrinum 12 – 16 ára í frítíma þeirra. Lögð er áhersla á að ná til sem flestra og bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni.

·         Umsjón með Sumarfrístund. Á sumrin er boðið upp á heils- og hálfsdags námskeið fyrir 6 – 9 ára börn þar sem áhersla er lögð á hreyfingu, sköpun og útiveru.

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

·         Reynsla af stjórnun æskileg.

·         Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum skilyrði.

·         Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt framúrskarandi samskiptahæfni skilyrði.

Almenn tölvukunnátta skilyrði.

Advertisement published23. June 2026
Application deadline13. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Egilsbraut 32 - 815 Þorlákshöfn
Type of work
Professions
Job Tags