
Leikskólinn Garðasel
Heilsuleikskólinn Garðaseli starfar eftir Heilsustefnunni sem kjarnast um hreyfingu, næringu og listsköðun í leik. Leikskólinn leggur einnig áherslu á vellíðan barna og starfsfólks og er Heilsueflandi leikskóli .
Garðasel er í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem aðstaða barna og starfsfólks eru til fyrirmyndar og stutt út í náttúruna.
Garðasel er sjö deilda leikskóli með um 150 til 160 nemendur.

Sumarstarfsmenn óskast í leikskólann Garðasel.
Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi auglýsir eftir starfsfólki í sumarafleysingar. Um er að ræða starf frá maí til ágúst 2026. Leikskólinn er lokaður frá 6. júlí til og með 3. ágúst. Vinnutími er eftir nánara samkomulagi.
Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að duglegu og áhugasömu fólki sem tilbúið er að vinna með skemmtilegum börnum. Í leikskólanum eru um 160 börn á sjö deildum.
Leikskólinn er í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem m.a. starfsaðstaða, hljóðvist og lýsing er til fyrirmyndar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áhugi á að starfa með börnum
- Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leiðbeinenda eða leikskólakennara.
- Starfið er unnið samkvæmt lögum og reglugerðum um leikskóla og í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.
- Taka þátt í skipulögðu starfi með börnum
- Önnur tilfallandi verkefni sem falla til í leikskólastarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Námskeið í skyndihjálp kostur
- 18 ára og eldri
- Hreint sakavottorð
Advertisement published30. March 2026
Application deadline14. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Asparskógar 25
Type of work
Skills
Clean criminal recordTeacherNo tobacco
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Deildarstjóri og leikskólakennari óskast til starfa við Brúarásskóla
Brúarásskóli

Viltu vera kennari í skólasamfélagi sem skiptir máli?
Hörðuvallaskóli

Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Sumarhús

Leikskólakennari - leikskólaliði
Leikskólinn Ösp

Sérkennari óskast á unglingastig næsta skólaár
Helgafellsskóli

Umsjónarkennari óskast á yngsta stig næsta skólaár
Helgafellsskóli

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir íþrótta- og umsjónarkennara
Borgarbyggð

Deildarstjóri leikskólamála (tímabundin staða til eins árs)
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri, sérkennslustjóri og deildarstjóri
Heklukot

Leikskólastjóri við leikskólann Kærabær, Fáskrúðsfirði
Leikskólinn Kæribær

Leikskólakennari
Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla

Sumarstörf í Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð