Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarf í móttöku velferðarsviðs

Skrifstofa þjónustu óskar eftir sumarstarfsmanni í móttöku velferðarsviðs Kópavogs.

Þjónustufulltrúi starfar í móttöku velferðarsviðs að Vallarkór 4. Hann sinnir ritara- og móttökustörfum fyrir skrifstofur sviðsins eftir því sem við á. Meginverkefni hans felast í samskiptum við fólk, skráningu gagna, skjalavörslu, frágang fundargerða, útsendingar bréfa og símavörslu. Þjónustufulltrúi gerir þjónustu sviðsins aðgengilega með því að aðstoða og leiðbeina notendum.
Um 100% starf er að ræða. Vinnutími er frá kl. 08:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 08:00 til 14:00 á föstudögum. Æskilegt er að geta hafið störf 1. júní og starfað út ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast afgreiðslu og símavörslu og gengur frá fundargerðum og bréfum.
  • Heldur utan um skráningu upplýsinga í mála- og skjalavistunarkerfum.
  • Annast skjalafrágang fyrir fagskrifstofur eftir þörfum.
  • Upplýsingagjöf til innlendra og erlendra íbúa um þjónustu velferðarsviðs. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf.
  • Góð tölvukunnátta og reynsla í notkun Word og Excel.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. Önnur tungumálakunnátta er mikill kostur.
  • Starfsreynsla í afgreiðslu æskileg.
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Stundvísi og skipulögð vinnubrögð.
Advertisement published3. February 2026
Application deadline8. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.NavisionPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags