
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Sumarstarf á íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk í Árbænum
Laus staða fljótlega á íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk, starfshlutfall eftir samkomulagi.
Íbúðakjarninn Hraunbæ 153-163 leitar að sumarafleysingu. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf sem snýr að stuðningi við íbúa á íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða nálgun þar sem unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.
Starfsandinn á vinnustaðnum er góður og unnið er í vaktavinnu á dag-, kvöld-, og helgarvöktum. Starfshlutfall eftir samkomulagi og laus staða fljótlega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðningur við íbúa í þeirra daglegu verkefnum.
- Valdefling íbúa.
- Félagslegur stuðningur við íbúa.
- Unnið eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni, frumkvæði og sveigjanleiki.
- Hæfni til þess að vinna í teymi.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
- Íslenskukunnátta B1 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
Fríðindi í starfi
Starfsfólki Reykjavíkurborgar bjóðast ýmis hlunnindi í starfi (sjá hér).
Advertisement published17. April 2026
Application deadline3. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Hraunbær 153
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (9)

Stuðningsfulltrúi í íbúðarkjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri á íbúðakjarna í Laugardalnum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimahjúkrun flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði!
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í íbúðakjarna Vallengi 2
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf stuðningsfulltrúa
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skemmtilegt sumarstarf!
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Similar jobs (12)

Starfsmaður óskast til afleysingar í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður óskast til starfa í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Ertu til í flippað hlutastarf með afleysingarívafi?
NPA miðstöðin

Stuðningsfulltrúi í íbúðarkjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ert þú með framúrskarandi þjónustulund? Sumarstarf
Pant

Teymisstjóri á íbúðakjarna í Laugardalnum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir
NPA miðstöðin

Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf

Óska eftir aðstoðarkonu í Vesturbæinn
NPA miðstöðin

Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk - Smárahvammur
Hafnarfjarðarbær