Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi

Skemmtilegt starf á íbúðakjarna fyrir fatlaða í Grafarvogi.

Okkur vantar fólk í afleysingar í sumar, með möguleika á áframhaldandi vinnu. Kostur ef viðkomandi getur byrjað fljótlega og unnið fram á haust.

Fullt starf og hlutastarf í boði.

Okkur vantar viðbót í frábæran starfsmannahóp á íbúðakjarna í Grafarvogi. Hér búa 6 konur, hver í sinni íbúð. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og fer fram í hverri íbúð eins og hentar hverri og einni.

Starfsmaður þarf að geta unnið allar vaktir, morgun, kvöld og nætur, bæði virka daga og um helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Advertisement published22. April 2026
Application deadline6. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Vættaborgir 82, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Suitable for
Professions
Job Tags