

Stuðningsfulltrúi í Barnaskóla Kársness
Stuðningsfulltrúi í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness auglýsir eftir öflugum stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2025 - 2026 í 60-75% starfshlutfall.
Barnaskóli Kársnes er nýr sameinaður grunn- og leikskóli í vesturbæ Kópavogs. Í grunnskólahluta skólans eru nemendur í 1. til 4. bekk.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf við nýjan skóla.
Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúar gegna mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir og þurfa að geta lesið í aðstæður og brugðist við með viðeigandi hætti. Í starfi stuðningsfulltrúa er einum nemanda ýmist fylgt eftir eða farið á milli bekkja og fleiri nemendum sinnt. Sem stuðningsfulltrúi vinnur þú í nánu samstarfi við kennara, sérkennara og deildarstjóra.
Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Vinnutími getur hentað fólki sem er í námi.
- Aðstoða nemendur við að vera virkir í skólastarfi
- Styrkja jákvæða hegðun nemenda
- Aðstoða nemendur við athafnir daglegs lífs ef þörf er á
- Styðja nemendur í félagslegum samskiptum
- Fylgja og aðstoða nemendur í vettvangsferðum
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
- Góð íslenskukunnátta
- Menntun sem nýtist í starfi
- Ábyrgð í starfi og stundvís
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Samskipta- og samstarfshæfni
- Skipulagshæfileikar












