
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Starfsmaður við sundlaugar Borgarbyggðar
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi auglýsir eftir kvenkyns starfsmanni í starf sundlaugarvarðar. Um 100% starf í vaktavinnu er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf í mars 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sundlaugargæsla, öryggisgæsla, klefavarsla, baðvarsla, gangavarsla, rýmisvarsla
- Afgreiðsla, þjónusta, samskipti við gesti, starfsmenn/aðra
- Símsvörun og upplýsingaþjónusta
- Upplýsingamiðlun og viðburðaskráning
- Almenn þrif
- Véla og tækjanotkun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Laugarvarðarréttindi.
- Góð þjónustulund og lipurð mannlegum í samskiptum.
- Góð íslensku kunnátta.
- Hreint sakavottorð.
Advertisement published5. February 2026
Application deadline28. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Þorsteinsgata 1-3 1R, 310 Borgarnes
Type of work
Skills
Swimming
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (4)


