
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Varmárlaug býður upp á sundlaug, barnalaug, sauna, vatnsgufu, infrarauðan klefa, tvo heita potta, þar af annar með nuddi, og leiktæki fyrir börnin. Líkamsræktarstöðin Elding er með líkamsræktarstöð í húsinu, og býr yfir fullbúnum tækjasal, leikfimisal o.fl.
Íþróttamiðstöðin Lágafell er með góða aðstöðu fyrir íþróttir og leiki. Þar er íþróttasalur með löglegum körfuboltavelli, hvíldarherbergi, nuddherbergi, eimbað og saunaklefi ásamt tilheyrandi búnings- og hreinlætisaðstöðu. Lágafellslaug býður upp á 25m keppnislaug, innisundlaug, barnalaug og vaðlaug auk þriggja vatnsrennibrauta. Þar eru einning tveir heitir pottar, nuddpottur og kaldur pottur. World Class er með líkamsræktarstöð í húsinu.
Sumarstörf í íþróttamiðstöðvum
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM SUNDLAUGARVÖRÐUM TIL STARFA Í ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐVUM Í MOSFELLSBÆ
Dagleg verkefni lúta meðal annars að afgreiðslu, þjónustu við þjónustuþega, samskipti við gesti/starfsmenn/aðra, símsvörun og upplýsingarmiðlun. Að auki eru almenn þrif og mælingar ásamt sundlaugargæslu, öryggisgæslu, klefavörslu, baðvörslu, gangavörslu sem og önnur verkefni sem snúa að uppgjöri og tækjakostum íþróttamiðstöðvarinnar.
Ábyrgðarsvið starfsmanns er að hafa jákvæð áhrif á vellíðan og virkni í samskiptum við aðra. Snyrtimennska, stundvísi og hreinlæti eru nauðsynleg.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Laugarvarsla
- Baðvarsla
- Afgreiðsla
- Þrif
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi mun sækja námskeið í skyndihjálp og þarf að standast hæfnispróf sundstaða.
- Lágmarksaldur 18 ár.
- Mjög góð þjónustulund.
- Dugnaður, stundvísi og samviskusemi.
Advertisement published5. February 2026
Application deadline19. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
Customer checkoutPositivityConscientiousPunctualCustomer service
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Verslunarstjóri
Rafkaup

Sumarstarf - Þjónustumiðja Vinnueftirlitsins
Vinnueftirlitið

Sumarstörf með fötluðu fólki á Egilsstöðum
Fjölskyldusvið

Sumarstarfsmaður
Örninn

Afleysingarmanneskja í mötuneyti
Embla Medical | Össur

Starfsfólk óskast í íþróttamiðstöðvar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar

Sumarstarf á Fyrirtækjasviði BAUHAUS!
BAUHAUS slhf.

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko

Timburafgreiðsla - BYKO Suðurnes
Byko

Verslunarstörf í Vík / General staff in Vík
Penninn Eymundsson

Afgreiðsla í verslun - Hlutastarf
Vistvera

Olís Fitjar Reykjanesbæ - Afgreiðsla og Lemon
Olís ehf.