Íþróttahús Kópavogsbæjar
Íþróttahús Kópavogsbæjar
Íþróttahús Kópavogsbæjar

Starfsmaður óskast í íþróttahús Lindaskóla

Starfsmaður óskast í íþróttahús Lindaskóla. Í starfinu felst m.a. þjónusta og samskipti við iðkendur og notendur ásamt þrifum, öryggisgæslu og klefavörslu í karlaklefa íþróttahússins. Þar af leiðandi koma eingöngu karlar til greina í starfið.

Starfsmaður íþróttahúss hefur eftirlit með því að umgengnisreglur séu virtar og hefur hlutverki að gegna í því að leiðbeina börnum og öðrum gestum sem þangað koma.

Um er að ræða 100% starf í dagvinnu. Íþróttahúsin eru reyklaus vinnustaður.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka vel á móti gestum íþróttahússins, aðstoða þá og leiðbeina
  • Afgreiðsla, símsvörun og upplýsingagjöf
  • Klefavarsla í karlaklefa sem er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum
  • Ræsting og þrif á öðrum rýmum íþróttahússins
  • Eftirlit með tækjum, húsbúnaði o.fl. sem heyrir undir íþróttahúsið
  • Sýna notendum íþróttahússins gott fordæmi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsfólk íþróttahúsa skal vera orðið 20 ára
  • Þar sem um klefavörslu í karlaklefa er að ræða koma eingöngu karlar til greina í starfið
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og þolinmæði
  • Góð samstarfshæfni og þjónustulund
  • Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Enskukunnátta æskileg
  • Grunnmenntun í skyndihjálp æskileg
  • Almenn tölvukunnátta æskileg
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Advertisement published22. July 2026
Application deadline12. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags