

Starfsmaður í Lagnadeild Byko Akureyri
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstakling til liðs við okkur í Lagnadeild BYKO á Akureyri.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími
Fullt starf virka daga, 8-16 tvær vikur, 9-17 tvær vikur, og þriðji hver laugardagur 10-16
Við leitum að starfsmanni með:
- Einhver þekking á lagnaefni nauðsynleg
- Reynslu af sölu- og eða þjónustustarfi
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sala, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina
- Afgreiðsla til viðskiptavina
Fríðindi í starfi
- Velferðarstyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Styrkur til töku fæðingar- og foreldraorlofs
- Símastyrkur (ef við á)
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
Unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Allar nánari upplýsingar veitir Egill Snær Þorsteinsson ([email protected]), verslunarstjóri
Icelandic










