

Lyfja Lágmúla - akstur og þjónusta
Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi með ríka þjónustulund í útkeyrslu á lyfjum og hjúkrunarvörum á höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í að veita faglega þjónustu og tryggja góða þjónustuupplifun til viðskiptavina Lyfju. Gilt bílpróf og hreint sakavottorð er skilyrði.
Hlutverk og ábyrgð:
- Tryggja réttmæta afhendingu á lyfjasendingum til viðtakenda
- Tryggja réttmæta afhendingu á hjúkrunarvörum til viðtakenda
- Sjá til þess að símar og öryggishnappur séu hlaðnir og á sínum stað í lok vaktar
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
- Ríka þjónustulund og gott viðmót
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Áreiðanleika og getu til að starfa í hröðu umhverfi
- Gilt bílpróf og hreint sakavottorð
- Góða íslensku- og enskukunnáttu
Starfið:
Vinnutími er frá 10:00-18:00 alla virka daga.
Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og geta hafið störf í byrjun janúar.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Lyfja rekur 45 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla í síma 533-2300 og á [email protected]
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Icelandic
English










