
ILVA ehf
ILVA er glæsileg verslun með húsgögn og smávöru. Verslunin á rætur sínar að rekja til Danmerkur þar sem fyrsta verslun ILVA var stofnuð árið 1974. Ilva rekur þrjár verslanir í dag sem eru staðsettar í Garðabæ, Akureyri og á Selfossi.
Hjá Ilva starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og áhugamál.
Ilva leitast við að ráða, efla og halda hæfu starfsfólki.

Starfsfólk í verslun - Helgarstarf - Kauptún
ILVA óskar eftir jákvæðum og söludrifnum einstakling til starfa í verslun okkar í Kauptúni Garðabæ. Starfið felur í sér sölu á húsgögnum og smávöru, áfyllingu á vörum inn í verslun og að veita framúrskarandi þjónustu.
Ef þú ert með brennandi áhuga á húsgögnum og fallegri hönnun þá gætum við verið að leita að þér.
Um er að ræða helgarstarf með möguleika á aukavöktum á virkum dögum.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hvetjum við sérstaklega 40 ára og eldri að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn sölustörf og afgreiðsla
- Þjónusta og símsvörun
- Áfyllingar og útstillingar
- Samsetningar á húsgögnum
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu-og þjónustustörfum er kostur
- Framúrskarandi þjónustulund
- Snyrtimennska og fáguð framkoma
- Metnaður og frumkvæði
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Advertisement published1. April 2026
Application deadline17. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Kauptún 1, 210 Garðabær
Type of work
Skills
Customer checkoutProactiveAmbitionSalesCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Sumarstarf - Söluráðgjafi hjá Bílaumboðinu Unu
Bílaumboðið Una

Starfsmaður í afgreiðslu í apóteki
Farmasía

Þjónustufulltrúi / Rental Agent
Go Leiga

Söluráðgjafi hjá ILVA Kauptúni
ILVA ehf

Reykjanesbær - sumar 2026
Vínbúðin

Hafnarverðir / Afgreiðsla í Landeyjahöfn
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf

Þjónustufulltrúi í þjónustuveri
Kópavogsbær

Sundlaugarverðir óskast í sumar
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum

Verslunarstarf í byggingavöruverslun
KS

Flúðir - sumar 2026
Vínbúðin

Þjónustufulltrúi í hópi ritara LRH
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustufulltrúi í kærumóttöku LRH
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu