
Torcargo
Torcargo er alhliða þjónustufyrirtæki í fraktflutningum með vikulegar siglingar á milli Íslands og meginlands Evrópu.
Starfsmenn Torcargo hafa í krafti reynslu sinnar þróað traust samstarf við öfluga þjónustuaðila í fraktflutningum á heimsvísu. Með vikulegum áætlunarsiglingum, lágmarks yfirbyggingu og þjónusta þeirra bestu við okkur er þar sem viðskiptavinir okkar finna muninn: Við erum einfaldlega snjallari!
Auk flutningsmiðlunar önnumst við umboðsþjónustu, skipamiðlun og hvers konar ráðgjöf á sviði alþjóðaflutninga. Þá tökum við að okkur alla skjalagerð og umsýslu fyrir viðskiptavini okkar, stóra sem smáa.

Starf á Fjármálasviði
Torcargo leitar eftir öflugum og ábyrgum einstaklingi í fullt starf á fjármálasvið félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem lögð er áhersla á nákvæmni, gagnrýna hugsun og skipulag.
Leitað er að samviskusömum og drífandi starfskrafti sem hefur metnað fyrir að ná árangri í starfi og vinna með öflugum hópi samstarfsfólks. Viðkomandi þarf að búa bæði yfir þeim aga og frumkvæði sem þarf til að geta unnið hvort sem er sjálfstætt eða í teymi með öðrum.
Við bjóðum uppá góð tækifæri til að vaxa í starfi hjá spennandi alþjóðlegu fyrirtæki með traustan fjárhag og góðan rekstur!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bókun reikninga og kostnaðareftirlit
- Uppgjör við tengda aðila
- Skýrslugerð og greiningar
- Dagleg samskipti við innlenda og erlenda viðskiptavini og samstarfsaðila
- Önnur tilfallandi fjármálatengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í viðskiptafræði eða önnur haldgóð menntun sem nýtist í starfi
- Góð þekking á Microsoft 365, reynsla af Business Central er kostur
- Nákvæm og skipulöð vinnubrögð
- Góð greiningarhæfni og gagnrýn hugsun
- Sjálfstæði og frumkvæði ásamt hæfni til að starfa í teymi
- Sveigjanleiki og færni til að starfa undir álagi
- Góð íslensku og ensku kunnátta í ræðu og riti
- Hrein sakaskrá
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun
- Tækifæri til að vaxa í starfi
- Öflugt starfsmannafélag
Advertisement published17. April 2026
Application deadline4. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Selhella 11, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
Quick learnerPositivityEmail communicationConscientiousIndependenceCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Bókari
Radisson RED Hotel, Reykjavik

Rådgiver for nordisk energisamarbejde
Signatur AS

Starfsmaður á bókhaldssvið
Enor ehf

Launafulltrúi
Securitas

Öflugur fulltrúi í innkaupadeild
Garðheimar

Gjaldkeri |Skrifstofuumsjón
Íslensk fjárfesting

Vörustjóri heilbrigðisvöru
Heilsa

Sumarstarf á skrifstofu á Húsavík
Eimskip

Fjölbreytt skrifstofustarf
LOGOS lögmannsþjónusta

Sérfræðingur í deild leyfisveitinga og ökunáms
Samgöngustofa

Verkefnastjóri á mannauðssviði
Hrafnista

Þjónustufulltrúi í fraktdeild
DHL Express Iceland ehf