
Garri
Garri er öflugt þjónustufyrirtæki í innflutningi á gæða matvörum, umbúðum og hreinlætislausnum fyrir veitingarekstur, hótel, fyrirtæki og stofnanir.
Við höfum ástríðu fyrir okkar starfi og erum vakandi fyrir nýjungum á markaði, vöruframboði og tæknilausnum. Við leggjum áherslu á sjálfbærni, stöðugar umbætur, ábyrga stjórnarhætti og eflingu mannauðs, með gildi Garra að leiðarljósi. Hjá Garra starfa um 100 manns.

Sölufulltrúi
Vilt þú vera hluti af frábæru teymi?
Við leitum að jákvæðum einstaklingi með brennandi áhuga og þekkingu á sölu og þjónustu til að starfa í öflugu söluteymi Garra. Viðkomandi þarf að njóta þess að vera í fjölbreyttum verkefnum, með metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og góða skipulagshæfni.
Hjá okkur færðu að starfa í skemmtilegu og stuðningsríku umhverfi þar sem heiðarleiki, áreiðanleiki og ástríða eru höfð að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta á vörum Garra
- Framúrskarandi samskipti, ráðgjöf og þjónusta til viðskiptavina
- Greining á markaði og tækifærum
- Tilboðsgerð og eftirfylgni
- Þátttaka í vöruþróun og innleiðingu nýrra vara
Menntunar- og hæfniskröfur
- Matreiðslunám, iðnnám sem nýtist í starfi, stúdentspróf eða sambærileg menntun.
- Jákvæðni, rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Áreiðanleiki og stundvísi
- Bílpróf og góð tölvufærni
- Góð færni í íslensku og ensku er nauðsynleg, bæði rituðu og töluðu máli.
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af vörum Garra
- Íþrótta- og sálfræðistyrkur
- Árleg heilsufarsmæling og ráðgjöf
- Mötuneyti með hollum og fjölbreyttum mat
- Frábærir samstarfsfélagar & öflugt starfsmannafélag
Advertisement published12. December 2025
Application deadline4. January 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
ProfessionalismHuman relationsPlanningSalesBusiness relationsCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

ÍSBÚÐIN OKKAR leitar að duglegum starfskrafti til að vinna frá 10:00-15:00 alla virka daga
FMM ehf.

Starfsmaður í Lagnadeild Byko Akureyri
Byko

Erum við að leita af þér?
Beautybar Kringlunni

Sölufulltrúi - Fullt starf
Byggt og búið

Viðskiptastjóri varahluta & sölumaður
Trukkur.is / Trucks ehf.

Kúnígúnd og Ibúðin - Eftir hádegi virka daga
Kúnígúnd

Kúnígúnd og Ibúðin - Fullt starf
Kúnígúnd

Sölumaður - Akureyri
Danól

Rafmagnaður ráðgjafi óskast
Vélar og verkfæri ehf.

Vörumerkja- og innkaupafulltrúi
GG Sport

Starfsfólk í verslun - Selfoss
Lífland ehf.

Helgar og aukavinna í Curvy
Curvy verslun