
Lín Design
Lín Design er íslensk lífstílsverslun á Smáratorgi sem býður upp á vandaðar vörur fyrir heimilið og alla fjölskylduna. Við leggjum áherslu á fallega hönnun, mikil gæði og persónulega þjónustu.
Starfsumhverfið er fjölbreytt og lifandi þar sem góð samvinna, jákvæðni og frumkvæði skipta miklu máli. Við viljum að viðskiptavinir okkar finni alltaf fyrir hlýlegu viðmóti og fái faglega og persónulega þjónustu.
Hjá Lín Design fær starfsfólk tækifæri til að vinna með fallegar vörur og sinna fjölbreyttum verkefnum, meðal annars sölu og ráðgjöf, framsetningu vara, netpöntunum, móttöku nýrra vara og almennri umsjón verslunarinnar.
Sölu- og afgreiðslustarf hjá Lín Design
Ert þú jákvæð/ur, söludrifin/n og þjónustulunduð/aður með auga fyrir fallegri hönnun?Lín Design leitar að hressum og áreiðanlegum einstaklingi við sölu og afgreiðslu í verslun okkar á Smáratorgi.Vinnutími er frá kl. 11–18 alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka vel á móti viðskiptavinum og bjóða aðstoð að fyrra bragði
- Veita framúrskarandi og persónulega þjónustu
- Söluráðgjöf og upplýsingagjöf um vörur Lín Design
- Tryggja fallega framsetningu og áfyllingu vara
- Afgreiðsla og frágangur netpantana
- Móttaka og frágangur nýrra vara
Menntunar- og hæfniskröfur
- Við leitum að einstaklingi sem
- Er jákvæður, þjónustulundaður og hefur gaman af samskiptum
- Er söludrifinn og óhræddur við að nálgast viðskiptavini
- Er áreiðanlegur, stundvís og skipulagður
- Sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt
- Hefur auga fyrir fallegri framsetningu og smáatriðum
- Talar góða íslensku
- Er 18 ára eða eldri
Advertisement published7. August 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
Location
Smáratorg 1
Type of work
Skills
Customer checkoutSales
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Hlutastarfsfólk í verslun - Reykjavík
Lífland ehf.

Okkur vantar Starfsfólk í Bónus á Akureyri!
Bónus

Icewear Akureyri og Goðafossi - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Icewear Þingvöllum óskar eftir
ICEWEAR

Vaktstjóri í íþróttamiðstöð
Borgarbyggð

Viltu steikja hamborgara á Röstí?
Gott kvöld ehf.

Afgreiðsla/Grillari
Holtanesti

Starfsmaður í afgreiðslu í vöruhúsi Garra
Garri

Vaktstjóri í fullt starf - Krónan Selfossi
Krónan

KFC í borginni
KFC ehf.

Starfsfólk í kjötdeild (helgarstörf) - Höfuðborgarsvæðið
Krónan

Sölumaður í skartgripaverslun
Jón og Óskar