
Okkur vantar Starfsfólk í Bónus á Akureyri!
Ertu hress, jákvæð/ur og til í að vinna með skemmtilegu fólki? Þá gætir þú verið akkúrat manneskjan sem við erum að leita að!
Við leitum að starfsfólki í almenn verslunarstörf í Bónus á Akureyri.
Helstu verkefni eru meðal annars:
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
- Áfyllingar og frágangur á vörum
- Að halda versluninni snyrtilegri og flottari
- Önnur fjölbreytt verkefni sem fylgja daglegum rekstri verslunar
Við leitum að fólki sem:
- Er jákvætt, duglegt og þjónustulundað
- Mætir á réttum tíma og tekur ábyrgð
- Á auðvelt með að vinna með öðrum
- Er tilbúið að bretta upp ermar þegar mikið er að gera
Reynsla af verslunarstörfum er kostur en alls ekki skilyrði – við kennum þér það sem þú þarft að kunna.
Langar þig að ganga til liðs við Bónus á Akureyri?
Sæktu um – við hlökkum til að heyra frá þér!
Starfsmenn Bónus eru um 1200 í dag í 33 verslunum, 20 á höfuborgarsvæðinu og 13 út á landi. Bónus er afar stolt af sínu starfsfólki og hafa allir tækifæri til að vinna sig upp í fyrirtækinu. Við viljum að tími starfsfólks hjá Bónus sé lærdómsríkur og ánægjulegur. Við fögnum fjölbreytileika og leggjum okkur fram um að skapa hvetjandi umhverfi fyrir alla starfsmenn.
Icelandic
English










