
Vopnafjarðarhreppur
Vopnafjarðarhreppur er fjölskylduvænt samfélag þar sem áhersla er lögð á hátt þjónustustig og metnaðarfullt leik- og grunnskólastarf. Fyrir börn og ungmenni er gott íþrótta- og tómstundastarf og má þar m.a. nefna dansskóla, fótbolta, blak og björgunarsveit. Einnig er góður tónlistarskóli og framhaldsskóladeild.
Vopnafjörður er þekktur fyrir óspillta náttúru sína og fallegt landslag sem býður upp á mikla möguleika til útvistar, sem dæmi má nefna sundlaugina Selárlaug sem er mikil náttúruperla á bökkum laxveiðiárinnar Selár. Þá hefur sveitarfélagið jafnframt mikla möguleika til uppbyggingar. Í sveitarfélaginu búa um 660 manns. Atvinnulíf er gott og státar sveitarfélagið af öflugum fyrirtækjum. Í þéttbýlinu er margvísleg þjónusta til staðar, s.s. leik- og grunnskóli, tónlistarskóli, slökkvistöð, heilsugæsla, hjúkrunarheimili auk margvíslegrar annarrar þjónustu. Fyrir utan bæinn er svo sundlaugin Selárlaug sem er algjör náttúruperla á bökkum laxveiðiárinnar Selár. Sjá nánar á www.vopnafjordur.is
Skrifstofustjóri
Vopnafjarðarhreppur auglýsir eftir kröftugum skrifstofustjóra sem vill hafa áhrif á rekstur og stefnu metnaðarfulls sveitarfélags.
Skrifstofustjóri hefur umsjón með fjármálum sveitarfélagsins. Skrifstofustjóri starfar í umboði sveitarstjóra og annast framkvæmd aðgerða í samræmi við samþykktir, lög og reglur, stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins hverju sinni. Skrifstofustjóri hefur umsjón með starfsemi skrifstofu sveitarfélagsins og fjármálum. Undir skrifstofustjóra heyra jafnframt öll verkefni á sviði atvinnu- og menningarmála.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón á fjármálastjórn sveitarfélagsins
- Gerð áætlana framkvæmd, þeirra og úrvinnsla, eftirfylgni og kostnaðareftirlit í samráði við sveitarstjóra
- Vinnur að atvinnutengdum verkefnum
- Ársreikningar og uppgjör
- Hefur eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða
- Lausafjárstýring og samskipti við lánastofnanir
- Innleiðing og eftirfylgni með innra eftirliti
- Þátttaka í stefnumótun og þróun stjórnsýslu
- Kynningarmál og umsjón með vefsíðu sveitarfélagsins
- Starfsmaður í menningar- og atvinnumálanefnd
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Fagleg þekking og reynsla af fjármálum og fjármálastjórnun
- Reynsla af verkefnastjórnun, stefnumótun og innleiðingu og eftirfylgni breytinga
- Þekking og/eða reynsla af stjórnsýslu er kostur
- Mjög góð samskipta- og samvinnufærni
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og drifkraftur
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvufærni
Advertisement published23. October 2026
Application deadline10. November 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Hamrahlíð 15, 690 Vopnafjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Bókari
Eðalfang ehf.

Commissioning Manager
atNorth

Fjármálastjóri
GoPro

Project Director
atNorth

Aðstoðarmaður forstjóra
Intellecta

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Deildarstjóri stafrænnar verðmætasköpunar
Orka náttúrunnar

Umhverfis- og framkvæmdarsvið - Teymisstjóri umhverfismála
Reykjanesbær

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Reykjanesbær

Skrifstofustjóri - Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í okkar lið!
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf.

Verkefnastjóri í fjármálateymi - Nýr Landspítali – Hlutastarf
Nýr Landspítali ohf.

Fjármálastjóri
SÁÁ