
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í rannsóknaþjónustu við Raunvísindastofnun við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið felst í því að leiða og styðja við undirbúnings- og umsóknarferli (e. Pre-Award) alþjóðlegra rannsóknastyrkja á sviði raunvísinda, náttúruvísinda og verkfræði. Sérfræðingurinn mun starfa náið með rannsakendum og alþjóðlegum rannsóknahópum að þróun og framsetningu samkeppnishæfra styrkumsókna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf, þróun, skipulag og ritun styrkumsókna (e. Grant Writer) einkum til evrópskra samkeppnissjóða á borð við Horizon Europe
- Stuðningur og ráðgjöf við rannsakendur og alþjóðlega rannsóknahópa við að móta rannsóknahugmyndir og miðla vísindalegu nýnæmi á skýran hátt
- Aðstoð við hönnun og ritun vinnupakka og verkefnaáætlana
- Greining tækifæra í styrkjaumhverfi raunvísinda, náttúruvísinda og verkfræði og ráðgjöf um samræmingu þeirra við stefnu og áherslur stofnunarinnar
- Stuðningur við uppbyggingu alþjóðlegs rannsóknasamstarfs og tengsla við erlenda samstarfsaðila
- Skipulagning og umsjón námskeiða, vinnustofa og fræðslufunda um gerð styrkumsókna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf á sviði raunvísinda, náttúruvísinda, verkfræði eða tengdra greina, doktorspróf er kostur
- Góð akademísk innsýn og hæfni til að setja sig inn í vísindaleg viðfangsefni
- Gagnrýnin og greinandi hugsun og hæfni til að móta og miðla vísindalegum viðfangsefnum
- Reynsla úr háskóla- og rannsóknaumhverfi og góður skilningur á starfsháttum, hugtakasmíð og þörfum rannsakenda er kostur
- Reynsla af undirbúningi, ritun, mótun og rýni stórra alþjóðlegum rannsóknastyrkjum er kostur
- Reynsla af regluverki, matsviðmiðum og umsóknarferlum evrópskra styrkja, þar á meðal EU Funding & Tenders Portal er kostur
- Reynsla af samstarfi við fjölbreytta, alþjóðlega rannsóknahópa er kostur
- Reynsla af námskeiðahaldi, ráðgjöf og leiðbeiningu til sérfræðinga er kostur
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Góð enskukunnátta, í ræðu og ritun fræðilegs texta
- Íslenskukunnátta í ræðu og riti, er kostur
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og þjónustulund
Advertisement published15. October 2026
Application deadline5. November 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Dunhagi 5, 107 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali

Aðstoðamaður á dýraspítala
Dýralæknar Sandhólaferju ehf.

Umhverfis- og framkvæmdarsvið - Teymisstjóri umhverfismála
Reykjanesbær

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Reykjanesbær

Skrifstofustjóri
Vopnafjarðarhreppur

Starfsmaður í afgreiðslu
Vélanaust

Starfsmaður í verkstæðismóttöku
Vélrás

Skrifstofustjóri - Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í okkar lið!
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf.

Starfsmaður í afgreiðslu.
Aðalskoðun hf.

MÓTTÖKURITARI
Tannréttingastofa Gísla E Árnasonar

Sérfræðingur í hringrásarhagkerfinu og úrgangsmálum
Umhverfis- og orkustofnun