Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Skarðshlíðarskóli

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundalið til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í 60 til 70 % starfshlutfall

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
  • Tekur á móti nemendum á morgnana
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
  • Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og salernum snyrtilegum yfir daginn
  • Starfar með nemendum með sértæka vanda
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)
  • Almenn tölvukunnátta

Ráðið er í stöðuna frá 10. ágúst 2026

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871, [email protected] og Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Advertisement published18. May 2026
Application deadline1. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags