
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar sér um og ber ábyrgð á rekstri starfsstöðva sem þjónusta fatlað fólk og eldra fólk auk þess að styrkja og styðja forstöðumenn starfsstöðva í störfum sínum. Skrifstofa stafstöðva og þróunar ber einnig ábyrgð á innra eftirliti með starfsemi starfsstöðvanna, framkvæmd nauðsynlegra breytinga í þjónustunni og þróun nýrra úrræða. Skrifstofan er tengiliður velferðarsviðs við:
- Jöfnunarsjóð sveitarfélaga vegna framlaga í málaflokki fatlaðs fólks.
- Sjúkratryggingar Íslands vegna samninga um hjúkrunarrými og dagdvalir.
- Þau ráðuneyti sem málaflokkar fatlaðs fólks og eldra fólks falla undir hverju sinni.
Þjónustan sem veitt er gegnum skrifstofu starfsstöðva og þróunar miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður viðkomandi sem geta verið margskonar:
- Heimili, íbúðakjarnar og stuðningur á eigin heimili fyrir fatlað fólk í samræmi við þarfir þess og óskir.
- Hæfing, starfsþjálfun,vernduð vinna og samfélagshús sem öllum er ætlað að veita þjálfun og stuðning sem miðar að því að auka hæfni þess til starfa og þátttöku í daglegu lífi eða á almennum vinnumarkaði.
- Hjúkrunarsambýli og dagdeild fyrir eldra fólk með heilabilun.
- Félagsstarf eldra fólks sem býður upp á fjölbreytta, skipulagða dagskrá yfir vetrarmánuðina í þremur félagsmiðstöðum bæjarins.

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð eldri borgara
Vilt þú vinna gefandi starf með eldri borgurum í jákvæðu og lifandi umhverfi?
Gjábakki, félagsmiðstöð eldri borgara í Kópavogi, leitar að öflugum frístundaleiðbeinanda til starfa frá og með byrjun ágúst 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Um er að ræða 70-100% dagvinnustarf.
Í starfinu felst að skipuleggja og leiða fjölbreytt félags- og tómstundastarf, taka vel á móti fólki og styðja við daglegt utanumhald félagsmiðstöðvarinnar. Þetta er fjölbreytt og gefandi starf fyrir einstakling sem hefur ánægju af samskiptum, þjónustu og því að gera góðan stað enn betri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag og framkvæmd félags- tómstunda- og menningarstarfs fyrir eldri borgara
- Móttaka gesta, upplýsingagjöf og skráning þátttöku
- Virk þátttaka í daglegu starfi félagsmiðstöðvarinnar
- Að efla jákvæð samskipti og samfélag
- Þátttaka í viðburðum og þróun starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla sem nýtist í starfi
- Menntun á sviði uppeldis- eða tómstundafræða er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Almenn tölvukunnátta
- Mjög góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Advertisement published19. May 2026
Application deadline6. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Fannborg 8, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Frístundaleiðbeinandi við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Urriðaholtsskóli - Frístundaleiðbeinandi í Urriðakot
Garðabær

Skóla- og frístundaliði - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari skólaárið 2026-2027
Baugur

Frístundaleiðbeinandi í Varmárskóla
Varmárskóli

Almenn umsókn um sumarstarf
Sumarstörf - Kópavogsbær

Stuðningsfulltrúi í frístund á Kleppjárnsreykjum
Borgarbyggð

Aðstoðarforstöðumaður í frístund Varmárskóla
Varmárskóli

Kennari - Leikskólinn Álfaberg
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Frístundaleiðbeinandi óskast í félagsmiðstöðina Bólið
Mosfellsbær

Frístundaráðgjafi óskast í félagsmiðstöðina Bólið - umsjón með miðstigsstarfi
Mosfellsbær