
Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi – í daglegu tali oft nefnt “ISAL” – hefur framleitt ál í Straumsvík frá árinu 1969 og notar til þess íslenska umhverfisvæna orku.
Við framleiðum um 200 þúsund tonn af hágæðaáli á ári og sendum það til fjölmargra viðskiptavina víðsvegar í Evrópu. Þannig öflum við dýrmætra gjaldeyristekna fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag.
Ál gerir daglegt líf okkar betra; það er meðal annars notað í bíla, flugvélar, byggingar, raftæki á borð við tölvur og síma, og umbúðir utan um matvæli, drykki og lyf. Mikil meirihluti áls er endurunninn sem þýðir að komandi kynslóðir geta notað það aftur og aftur með lítilli fyrirhöfn.
Við erum fjölbreyttur vinnustaður tæplega 400 starfsmanna auk verktaka.
Við kappkostum að vera í fararbroddi í öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum og leggjum einnig mikla áherslu á starfsmenntamál og jafnrétti á vinnustað.
Gildi okkar eru: umhyggja - hugrekki - framsækni

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna
Við auglýsum laust til umsóknar starf skipuleggjanda viðhaldsverkefna í spennandi starfsumhverfi Straumsvíkur. Skipuleggjandi viðhaldsverkefna (planari) hefur meginumsjón með undirbúning og áætlanagerð tengt viðhalds- og endurbótaverkefnum. Starfið er fjölbreytt og krefst skipulagshæfileika þar sem öryggi er undirstaða allra verka.
Við hvetjum öll áhugasöm til að kynna sér starfið og sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppfærsla viðhaldsáætlana, varahlutaskráa og verklýsinga
- Eftirfylgni með öryggismálum
- Áætlanagerð viðhaldsverkefna
- Þátttaka í verkefna- og umbótavinnu
- Náið samstarf við viðhaldshópa verkstæða og önnur svið fyrirtækisins
- Samskipti við verktaka og birgja
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vélfræðingur eða iðn- tæknifræðimenntun
- Reynsla af verkefnastjórnun og hæfni til að starfa með teymum
- Umbóta- og lausnamiðuð hugsun
- Reynsla af áætlanagerð
- Rík öryggisvitund
- Þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar
- Áræðni og frumkvæði í starfi
- Almenn góð tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Frítt fæði í mötuneyti
- Heilsustyrkur
- Fæðingarorlofsstyrkur allt að 18 vikur á óskertum launum
- Velferðartorg
- Þátttaka í hlutabréfakaupum
- Öflugt þjálfunar- og fræðslustarf
Advertisement published1. October 2026
Application deadline18. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Straumsvík, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
ProactiveConscientiousIndependenceJourneyman licenseIndustrial mechanics
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Rafvirki
Blikkás ehf

Tækjasérfræðingur – uppsetning, þjónusta og þjálfun
DTE

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Deildarstjóri lagna og loftræsinga / Head of Discipline HVAC
COWI

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Mechatronics Engineer
Laki Power

Sérfræðingur í tækniþróun og nýsköpun
Orka náttúrunnar

Vélvirki
Nói Síríus