

Tækjasérfræðingur – uppsetning, þjónusta og þjálfun
Vélmenni teygir sig inn í ofn með bráðinni álblöndu, tekur sýni og leysir greinir hvaða frumefni eru í málminum á meðan hann er enn í fljótandi formi. DTE er leiðandi á heimsvísu á þessu sviði og tæknin er nú í notkun allan sólarhringinn í álverum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þú verður sá einstaklingur sem smíðar búnaðinn, setur hann upp, gangsetur hann og tryggir að hann haldist gangandi.
Starfið er staðsett á Íslandi og er því fjölbreyttara en hefðbundið starf við vettvangsþjónustu. Á milli uppsetningarverkefna erlendis starfar þú við framleiðslu okkar, þar sem þú setur saman og prófar búnaðinn sem þú kemur síðar til með að setja upp hjá viðskiptavinum. Sá sem framkvæmir samþykktarprófanir í verksmiðju (Factory Acceptance Test – FAT) er því oft sá sami og gangsetur búnaðinn á staðnum.
Eftir því sem þjónustuteymi okkar erlendis stækka tekur þú þátt í þjálfun þeirra og veitir tæknilega aðstoð og ráðgjöf þegar upp koma flóknar bilanir eða óvænt vandamál við notkun búnaðarins.
Hiti, hávaði, ryk, þungavinnuvélar og búnaður sem verður að virka áreiðanlega allan sólarhringinn. Ef þér finnst þetta vera spennandi hluti starfsins skaltu lesa áfram.
Á vettvangi hjá viðskiptavinum
-
Setja upp, gangsetja, sinna viðhaldi og þjónustu við greiningarbúnað okkar hjá viðskiptavinum, auk þess að þjálfa starfsfólk í notkun hans.
-
Ganga úr skugga um að aðstæður á uppsetningarstað séu fullnægjandi áður en uppsetning hefst, meðal annars hvað varðar rafmagn, nauðsynlega innviði, aðgengi, lyftibúnað og öryggissamþykktir, og vekja tímanlega athygli á því sem þarf að bæta úr.
-
Taka þátt í bakvaktarfyrirkomulagi vegna fjarþjónustu og þjónustu á staðnum.
Í framleiðslu okkar
-
Smíða, setja saman og prófa búnað á milli uppsetningarverkefna og framkvæma samþykktarprófanir í verksmiðju (FAT) áður en búnaður er afhentur.
-
Vinna með verkfræðiteyminu að frumgerðum og prófunum og miðla niðurstöðum og reynslu til frekari þróunar búnaðarins.
Í samstarfi við þjónustuteymi erlendis
-
Þjálfa og styðja þjónustusérfræðinga okkar erlendis.
-
Vera helsti tæknilegi ráðgjafi þjónustuteymanna frá Íslandi þegar upp koma vandamál sem þau geta ekki leyst sjálf.
-
Taka þátt í að þróa og bæta verklagsreglur, gátlista, varahlutalista og leiðbeiningar um bilanagreiningu og viðgerðir.
-
Að minnsta kosti þriggja ára reynsla af vettvangsþjónustu, samsetningu búnaðar eða tæknilegri aðstoð vegna rafeinda- eða iðnaðarbúnaðar.
-
B.Sc.-gráða í verkfræði eða skyldri tæknigrein, eða sambærileg starfsreynsla.
-
Góð færni í bilanagreiningu sjálfvirkra stýrikerfa og þolinmæði til að finna raunverulegar orsakir vandamála.
-
Vilji og geta til að starfa í heitu og hávaðasömu iðnaðarumhverfi, nota viðeigandi persónuhlífar og meðhöndla búnað.
-
Mjög góð enskukunnátta. Íslenskukunnátta er kostur, sem og önnur tungumál.
-
Kostur er að hafa reynslu úr málmiðnaði eða málmsteypum, rafiðnaðarmenntun eða sveinspróf, eða reynslu af þjálfun tæknifólks.
Starfið felur í sér regluleg verkefni hjá viðskiptavinum á Íslandi og um 30% ferðalög erlendis, meðal annars vegna uppsetningar búnaðar og samstarfs við þjónustusérfræðinga okkar í Bandaríkjunum og Evrópu.
Umsækjendur þurfa að hafa gilt ökuskírteini og vegabréf. Í stóriðju eru gjarnan gerðar sérstakar kröfur um aðgang að starfsstöðvum, svo sem öryggisþjálfun, læknisskoðanir eða vímuefnapróf og bakgrunnsathuganir.
Við höfum þegar sýnt fram á að tæknin virkar. Búnaður DTE er kominn í notkun í iðnaðarframleiðslu og nú erum við að stíga næstu skref, frá einstökum uppsetningum yfir í heildarlausnir fyrir álver.
Við erum að leysa grundvallarvandamál í einni stærstu atvinnugrein heims: málmframleiðendur geta ekki hámarkað árangur framleiðslunnar án þess að geta mælt og fylgst með efnasamsetningu málmsins í rauntíma. Þessar upplýsingar skapa jafnframt forsendur fyrir rauntímastýringu framleiðsluferla, aukinni endurvinnslu og minni losun.
Gildi DTE eru tilgangur, framúrskarandi árangur og valdefling (purpose, excellence and empowerment). Við leitum að drífandi og úrræðagóðu fólki sem hefur áhuga á að þróa tækni sem skilar raunverulegum árangri í iðnaði.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. DTE leggur áherslu á fjölbreytileika og inngildingu á vinnustað þar sem starfsfólk fær stuðning, traust og tækifæri til að nýta hæfileika sína til fulls. Við hlökkum til að heyra frá þér.
Umsóknarfrestur er til 20. október 2026.
English
Icelandic










