Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Sjúkraþjálfunarnemi - Hrafnista Laugarás

Ert þú sjúkraþjálfunarnemi og vilt vinna á skemmtilegum og gefandi vinnustað í sumar?

Sjúkraþjálfunardeild Hrafnistu Laugarási óskar eftir að ráða áhugasama sjúkraþjálfunarnema til starfa í sumar.

Á Hrafnistu Laugarási búa tæplega 200 íbúar en auk þess koma um 50 manns í hverri viku í dagendurhæfingu sem við þjónustum líka. Starfið er því mjög fjölbreytt og gefur góða reynslu. Á sjúkraþjálfunardeild starfa sjúkraþjálfarar, íþróttafræðingar og aðstoðarfólk sem vinna saman að velferð íbúa.

Starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna náið með sjúkraþjálfurum deildarinnar
  • Aðstoða við greiningu, endurhæfingu, þjálfunaráætlun og skráningu
  • Hópþjálfun og einstaklingsþjálfun
  • Aðstoða við ráðgjöf og umsóknir á hjálpartækjum
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nemi í sjúkraþjálfun - æskilegt að hafa lokið 3 árum
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á vellíðan og lausnum þjónustuþega til hagsbóta
  • Góð skipulagshæfni
  • Sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur fyrir þau sem ferðast með strætó
  • Námsleyfi og styrkir
Advertisement published6. February 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Type of work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags