Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Iðjuþjálfi - Hrafnista Laugarási

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða til sín iðjuþjálfa.

Starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni. Um er að ræða spennandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild ásamt mótun og þróun á starfinu. Á Hrafnistu leitast iðjuþjálfar við að starfa einstaklingsmiðað þannig að þarfir hvers og eins séu hafðar að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á hverju sinni. Þannig hefur þátttakan jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
  • Meta færni, veita færniþjálfun og ráðgjöf
  • Skráning og skýrslugerð
  • Fræðsla og skipulagning starfa aðstoðarfólks iðjuþjálfa á deild
  • Fræðsla og hópastarf til sjúklinga og aðstandenda
  • Þátttaka í hópastarfi
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
  • Þátttaka í fagþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta
Advertisement published6. February 2026
Application deadline15. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Independence
Work environment
Professions
Job Tags