Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraþjálfari - Heilsugæslan Efra Breiðholti

Heilsugæslan Efra Breiðholti auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að sinna hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um er að ræða 50-80% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, góða samvinnu fagstétta og sveiganlegan vinnutíma.

Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem veitt er fyrstu línu þjónusta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni og framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir
  • Metur, greinir og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga
  • Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
  • Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
  • Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
  • Leiðbeinir samstarfsfólki
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilt sjúkraþjálfarapróf
  • Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari
  • Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslensku og enskukunnátta
Advertisement published8. April 2025
Application deadline28. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags