
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
LV er leiðandi lífeyrissjóður sem byggir upp trausta fjárhagslega framtíð sjóðfélaga. Fjármunir sjóðfélaga eru ávaxtaðir með gagnsæjum og ábyrgum hætti með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.
Hjá sjóðnum starfar 56 manna samhent liðsheild þar sem hver og einn nær að nýta hæfileika sína og þekkingu til að sinna krefjandi verkefnum. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, þverfaglegt samstarf, góð samskipti, frumkvæði og hæfni til að laga sig að síbreytilegu umhverfi.
LV býður upp á góða starfsaðstöðu og starfsumhverfi þar sem áhersla er meðal annars lögð á jafnrétti og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. LV hefur hlotið jafnlaunavottun.

Sjóðstjóri
LV leitar að öflugum og reyndum sjóðstjóra í eignastýringu sjóðsins. Viðkomandi verður hluti af þriggja manna teymi sem hefur umsjón með innlendum skráðum hluta- og skuldabréfum. Sjóðstjórinn mun jafnframt hafa umsjón með erlendum skráðum hlutabréfum sjóðsins sem eru að stærstum hluta í sérgreindum söfnum. Sá hluti starfsins snýr einkum að eftirliti, greiningu á samsetningu, áhættu og árangri eignasafna auk samskipta við erlenda eignastýrendur.
Um er að ræða krefjandi starf fyrir einstakling með víðtæka reynslu af fjármálamörkuðum, sterka greiningarhæfni og áhuga á að taka virkan þátt í faglegri teymisvinnu við stýringu og greiningu skráðra verðbréfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Virk þátttaka í fjárfestingarákvörðunum vegna innlendra skráðra hluta- og skuldabréfa, ásamt sjóðstjórum eignaflokkanna
- Sjóðstjóri erlendra skráðra hlutabréfa, einkum eftirlit með sérgreindum söfnum
- Greining á innlendum fjármálamarkaði, atvinnugreinum, útgefendum og markaðsaðstæðum
- Mat á fjárfestingarkostum, áhættu og væntri ávöxtun skráðra verðbréfa
- Þátttaka í mótun fjárfestingaráherslna og undirbúningi fjárfestingarákvarðana
- Samskipti við innlenda og erlenda eignastýrendur, miðlanir og aðra markaðsaðila
- Greining og vöktun á ávöxtun, áhættu og samsetningu eignasafna
- Þátttaka í innleiðingu sjálfbærnistefnu sjóðsins í skráðum verðbréfum, þ.m.t. stuðningur við reglubundna upplýsingagjöf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Að lágmarki 10 ára reynsla af fjármálamörkuðum er æskileg, s.s. eignastýringu eða sambærilegum störfum
- Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjármála, hagfræði, verkfræði eða viðskiptafræði
- Verðbréfaréttindi eru skilyrði og CFA réttindi eru kostur
- Víðtæk reynsla af greiningu og/eða stýringu skráðra verðbréfa
- Framúrskarandi greiningarhæfni og geta til að setja flókin gögn í skýrt samhengi
- Sjálfstæði, frumkvæði og öguð vinnubrögð
- Rík hæfni til að vinna í faglegu og krefjandi teymi
- Góð þekking á innlendum fjármálamarkaði
- Reynsla af samskiptum við erlenda eignastýrendur og þekking á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Advertisement published26. May 2026
Application deadline8. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte
Deloitte

Sérfræðingur í kostnaðarstýringu
Landsvirkjun

Sérfræðingur í reikningshaldi
Míla hf

Forstöðumaður viðskiptaumsjónar
Seðlabanki Íslands

Sales Engineer
JBT Marel

Innkaupafulltrúi
Landsvirkjun

Sérfræðingur á sviði endurskoðunar
&Pálsson

Bókari
Eignaumsjón hf

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT ehf.
ECIT ehf.

Sérfræðingur í launum hjá ECIT ehf.
ECIT ehf.

Innkaupa- og rekstrarsérfræðingur hjá Mosfellsbæ
Mosfellsbær

Business Central ráðgjafi með þekkingu á tollamálum
Advania