
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku, þekkingu og framsækni.

Sérfræðingur í viðskiptaumsjón
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing með reynslu af fjármálamarkaði, í deild bakvinnslu á sviði markaðsviðskipta.
Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.
Bakvinnslan er ein af fjórum deildum á sviðinu og sinnir m.a. frágangi viðskipta vegna lánamála ríkisins, gjaldeyrisviðskipta og markaðsaðgerða Seðlabankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innlent og erlent verðbréfauppgjör
- Verðbréfavarsla
- Greiðslumiðlun í krónum og erlendum myntum
- Vöktun á kortauppgjörskerfi
- Bankaþjónusta fyrir ríki og ríkisstofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði
- Viðeigandi reynsla af fjármálamarkaði
- Þekking á innlendum og erlendum greiðslu- og uppgjörskerfum er kostur
- Þekking á Swift greiðslu- og verðbréfaskeytum er kostur
- Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
- Nákvæmni, frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Advertisement published21. April 2026
Application deadline6. May 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsAmbitionPrecisionSwiftWrite up
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsmaður á bókhaldssvið
Enor ehf

Fjölbreytt skrifstofustarf
LOGOS lögmannsþjónusta

Sérfræðingur í fjármálum
Smart finance

Fjármálastjóri
SOS Barnaþorpin

Verkefnastjóri í innkaupum, innflutningi og vörudreifingu.
Formus

Fulltrúi í launadeild
Íslandshótel

Nýliðar á endurskoðunarsviði - Akureyri
KPMG á Íslandi

Sérfræðingur í reikningsskilum - Akureyri
KPMG á Íslandi

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT á Akureyri.
ECIT ehf.

Sérfræðingur í stafrænni þróun á sölusviði
Coca-Cola á Íslandi

Starf á Fjármálasviði
Torcargo

Sérfræðingur þjálfunar- og gæðamála
Isavia / Keflavíkurflugvöllur