
Sjóvá
Sjóvá leitast við að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér metnaðarfullt og hæft starfsfólk og skapar starfsmönnum tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
Hjá okkur starfa um 200 manns, þar af um 170 í höfuðstöðvum okkar í Kringlunni 5 en Sjóvá er með útibú víðsvegar um landið. Meðalstarfsaldur er 10 ár og margir búa að langri og víðtækri starfsreynslu meðan aðrir eru að hefja sinn starfsferil með okkur.
Fyrirtækjamenning okkar einkennist af mikilli þjónustulund, fagmennsku og samheldni, í bland við keppnisskap og vináttu. Við leggjum áherslu á góð samskipti við viðskiptavini og hvert annað og höfum vegvísana okkar Við sýnum umhyggju, við byggjum á þekkingu, við erum kvik og við einföldum hlutina sem okkar leiðarljós í öllum samskiptum.

Sérfræðingur í viðskiptagreind
Við leitum að metnaðarfullum aðila í teymi viðskiptagreindar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem unnið er þvert á allt fyrirtækið með gögn, greiningar og lausnir sem styðja við ákvarðanatöku og rekstur. Deildin gegnir einnig lykilhlutverki í hagnýtingu gervigreindarlausna hjá félaginu.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á gögnum, sjálfvirknivæðingu og vilja til að læra og tileinka sér nýjar aðferðir og tækni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- framþróun og viðhald skýrsluumhverfis og gagnalíkana
- hönnun og þróun mælaborða og skýrslna
- greining gagna og túlkun upplýsinga í samstarfi við aðrar deildir
- þátttaka í þróun og rekstri gagnavöruhúss
Menntunar- og hæfniskröfur
- háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði, hagfræði eða tölvunarfræði
- góð þekking og reynsla af SQL
- reynsla af skýrslugerð og gagnaframsetningu
- góð greiningarhæfni og geta til að miðla flóknum upplýsingum á aðgengilegan hátt
- góð samskiptahæfni og þjónustulund
- reynsla af Power BI og DAX er kostur
- þekking á Python er kostur
- þekking á Power Platform er kostur
Advertisement published4. June 2026
Application deadline17. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Kringlan 5, 103 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Software developer
Optitog ehf

Sumarævintýri með Eimskip á Grænlandi
Eimskip

Machine Learning Engineer
GreenFish

Sérfræðingur í viðskiptagreiningu
Landsvirkjun

Lead Mechanical/Mechatronics Engineer - R&D
Eirr Medical

Sérfræðingur í fjármálum
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Verkefnastjóri/sérfræðingur
Vegagerðin

Business Central ráðgjafi með þekkingu á verkbókhaldi
Advania

Technical Support Specialist
Nox Medical

Sérfræðingur í viðskiptaþróun
Landsnet

BIM-stjóri Nýs Landspítala ohf.
Nýr Landspítali ohf.

Sérfræðingur í fjármálagreiningum
Míla hf