Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs.

Sérfræðingur í skipulagsmálum

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita leitar eftir einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á skipulagsmálum.

Undir embættið heyra skipulags-, seyru- og byggingarmál sex sveitarfélaga. Viðkomandi þarf að vera jákvæður, ábyrgur og með góða skipulagshæfni ásamt lipurð í mannlegum samskiptum. Sérfræðingur í skipulagsmálum mun starfa í nánu samstarfi við skipulagsfulltrúa, starfsfólk og hagaðila innan sem utan embættisins með það að markmiði að stuðla að fagmennsku, mótun og þróun skipulagsmála.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Ráðgjöf og upplýsingagjöf um skipulagsmál.

·       Samskipti og bréfaskrif.

·       Undirbúningur funda skipulagsnefndar, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.

·       Rýna og yfirfara skipulagsgögn.

·       Önnur tilfallandi verkefni tengd skipulags- og lóðamálum.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi. Skipulagsfræði eða sambærilegt.

·       Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er æskileg.

·       Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.

·       Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi.

·       Hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.

·       Góð almenn tölvukunnátta.

Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2026. Umsóknir skulu berast í gegnum vefinn alfred.is. Öllum umsóknum verður svarað.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Nanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri, – [email protected]

Advertisement published22. July 2026
Application deadline15. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Laugarvatn 167638, 801 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PlannerPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags