

Sérfræðingur í skipulagsmálum
VILT ÞÚ STARFA Á NÚTÍMALEGUM VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTU OG ÁRANGURSDRIFIÐ VINNUUMHVERFI?
Skipulagsstofnun hefur nú sameinast HMS í eina öfluga stofnun (Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun) sem ber ábyrgð á ferlinu frá skipulagi til fullbúins mannvirkis ásamt öllu sem tengist manngerðu umhverfi. Með sameiningunni varð til sterkari stofnun með aukna getu til að vinna að þeim spennandi kerfisbreytingum í húsnæðis- og skipulagsmálum sem boðaðar eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Við leitum því að metnaðarfullu og kraftmiklu starfsfólki til að efla þjónustu okkar við almenning og hagaðila á sviði skipulagsmála. HMS býður upp á árangursdrifinn vinnustað með skýr markmið, stefnu og gildi sem hjálpa okkur að vinna saman og ná lengra. Þú færð tækifæri til að leggja þitt af mörkum í verkefnum sem skipta sköpum fyrir samfélagið.
- Ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsgerð sveitarfélaga, sérstaklega varðandi gerð og afgreiðslu aðal- og deiliskipulags.
- Ýmis verkefni við miðlun, leiðbeiningar og kynningarmál um skipulagsmál.
- Þátttaka í vinnu við þróun leiðbeininga, laga og reglugerða á sviði skipulagsmála.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði skipulagsfræði eða arkitektúrs
- Þekking og reynsla af skipulagsmálum
- Þekking og reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu er kostur
- Færni í notkun landfræðilegra upplýsingakerfa
- Góð greiningarfærni, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð samskipta- og samstarfshæfni ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Icelandic
English
