
Landskerfi bókasafna hf.
Landskerfi bókasafna er hlutafélag í eigu ríkis og sveitarfélaga. Tilgangur þess er að reka upplýsinga- og skráningarkerfi fyrir bókasöfn og eftir atvikum önnur söfn á Íslandi og veita þeim tengda sérfræðiþjónustu.
Landskerfið rekur bókasafnakerfið Gegni, leitargáttina leitir.is og Rafbókasafnið og þjónustar um 300 bókasöfn. Starfsmenn félagsins eru átta talsins.
Nánari upplýsingar má finna á www.landskerfi.is.
Rekstrar- og þróunarstjóri
Vertu leiðandi afl í rekstri og þróun Landskerfa bókasafna
Landskerfi bókasafna gegnir lykilhlutverki í þróun, rekstri og þjónustu sameiginlegra upplýsingakerfa fyrir íslensk bókasöfn og önnur menningar- og minjasöfn. Í nánu samstarfi við söfn um land allt vinnur félagið að þróun öflugra stafrænna lausna sem styðja við miðlun þekkingar, aðgengi að upplýsingum og framúrskarandi þjónustu til almannaheilla.
Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga til að taka að sér nýtt lykilhlutverk innan félagsins. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur metnað til að leiða daglegan rekstur, efla þjónustu, stuðla að stöðugum umbótum og móta áframhaldandi þróun Landskerfa bókasafna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri, eftirfylgni og rekstrarmarkmiðum.
- Ábyrgð á mannauðsmálum, starfsþróun og stuðningi við starfsfólk.
- Þátttaka í stefnumótun og innleiðingu breytinga í rekstri og þjónustu.
- Leiða umbótaverkefni og þróun verklags með áherslu á skilvirkni og gæði.
- Umsjón með samskiptum og samstarfi við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.
- Umsjón með upplýsingaöryggiskerfi.
- Önnur verkefni samkvæmt samkomulagi við framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af rekstri og stjórnun.
- Leiðtogahæfileikar og geta til að efla samstarf og árangur starfsfólks.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og drifkraftur.
- Áhugi á umbótum, stafrænni þróun og hagnýtingu nútímatæknilausna.
- Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð almenn upplýsingatækniþekking.
Advertisement published7. August 2026
Application deadline20. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
LibrarianChange managementLeadershipEngineerBusiness administrator
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (11)

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði
Vegagerðin

Deildarstjóri á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Barna- og fjölskyldustofa

Deildarstjóri hjá Klettabæ
Klettabær

Vöruhúsastjóri
Innnes ehf.

Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar
Reykjanesbær

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Sveitarfélagið Vogar

Fjármálastjóri
Hnit Artelia

Bankastjóri Blábankans
Blábankinn

Ungur frumkvöðull leitar að hægri hönd
Sprotasamsteypa / fjárfestir

Skrifstofu- og rekstrarfulltrúi
Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi

Framkvæmdastjóri óskast á Oche Reykjavík 🎯
Oche Reykjavik