
Heilsa
Heilsa ehf. er leiðandi heildsali í heilsuvörum og lyfjum á Íslandi. Hjá Heilsu starfar samhentur hópur starfsfólks að því að koma gæðavörum í réttar hendur fljótt og örugglega.
Heilsa er dótturfélag Lyfju og hluti af Festi samstæðunni.

Pökkun
Heilsa leitar að öflugum og nákvæmum starfsmanni í pökkunarteymið sitt.
Við leitum að áreiðanlegum liðsmanni í pökkun lyfja eða vítamína – í hreinu, öruggu og faglegu umhverfi þar sem gæðastaðlar og verklag eru í hávegum höfð. Unnið er með lyf og vítamín í aðskildum pökkunarlínum samkvæmt ströngum verklagsreglum. Þú munt gegna mikilvægu hlutverki í því að tryggja öryggi og rétta merkingu á vörum sem fara á markað.
Helstu verkefni:
- Pökkun lyfja eða vítamína í sérútbúnum pökkunaraðstöðum
- Yfirfara fylgiseðla, umbúðir, merkingar og framleiðslugögn
- Viðhalda þjálfun og fylgja verklagsreglum samkvæmt góðum starfshættum í lyfja og matvæladreifingu
- Skráning og meðhöndlun upplýsinga samkvæmt stöðluðum ferlum
Hæfniskröfur:
- Próf í lyfjatækni eða matvælatækni er kostur
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Góð íslenskukunnátta (lestur og skrift)
- 20 ára aldurstakmark
VIÐ BJÓÐUM
- Faglegt starfsumhverfi og góð liðsheild
- Þjálfun og stuðning við innleiðingu í starfið
- Vinnutími: Virkir dagar, 100% starf
- Aðgangur að velferðarþjónustu og styrkur til heilsueflingar
- Afsláttarkjör hjá Lyfju, Krónunni, N1 og ELKO
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elvar Örn Kristinsson forstöðumaður lyfjasviðs, [email protected].
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Advertisement published7. August 2025
Application deadline17. August 2025
Language skills

Required
Location
Bæjarflöt 1-3 1R, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (10)

Starfsmaður í afgreiðslu í apóteki
Farmasía

Gæðaeftirlitsmaður
Steypustöðin

Starfsmaður í pökkun og framleiðslu
Nathan & Olsen

Hamborgaragerð
Kjötsmiðjan

Þjónusta í apóteki - Bíldshöfði
Apótekarinn

Apótekarinn - Flakkari
Apótekarinn

Þjónusta í apóteki - Flakkari
Lyf og heilsa

Við leitum að starfsmanni í framleiðsludeild á Akureyri
TDK Foil Iceland ehf

Almennur starfsmaður í framleiðslu
Ali

Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali