Dýralæknastofa Hafnarfjarðar ehf.
Dýralæknastofa Hafnarfjarðar ehf.
Dýralæknastofa Hafnarfjarðar ehf.

Móttaka á dýralæknastofu

Fullt starf í sumar með möguleika á áframhaldandi ráðningu

Dýralæknastofa Hafnarfjarðar leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi í starf í móttöku. Við leggjum ríka áherslu á velferð dýra, góð samskipti við gæludýraeigendur og milli starfsfólks. Við vinnum samkvæmt Fear Free hugmyndafræðinni í öllu okkar starfi.

Starfið er fullt starf yfir sumarið, með góðum möguleika á áframhaldandi starfi fyrir réttan aðila. Stofan er opin virka daga frá kl. 8-17.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka viðskiptavina og sjúklinga

  • Símsvörun og bókanir

  • Fóðurráðgjöf og sala á vörum

  • Samskipti við annað starfsfólk

  • Þrif í búð og móttöku
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vinnu með dýrum (mikill kostur en ekki nauðsynlegt)

  • Sjálfsöryggi, skipulagshæfileikar og áreiðanleiki

  • Geta til að vinna vel sjálfstætt og í hóp

  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum

  • Hæfni til að vinna vel undir álagi

  • Áhugi á Fear Free hugmyndafræðinni og velferð dýra

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Stúdentspróf og 22 ára+
Advertisement published8. February 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Stakkahraun 1, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags