Jónsbók
Jónsbók

Markaðsstjóri – Jónsbók

Byggðu upp vörumerki Jónsbókar á Norðurlöndum og í Mið- og Austur-Evrópu.

Jónsbók er gervigreindarlausn fyrir lögfræðinga og félagið starfar nú þegar á Íslandi, í Finnlandi, Noregi, Ungverjalandi, Króatíu, Póllandi og Rúmeníu. Við leitum að markaðsstjóra sem tekur fulla ábyrgð á markaðsmálum fyrirtækisins, allt frá samfélagsmiðlaauglýsingum til vörumerkjauppbyggingar og viðburða í fjölda landa. Þú vinnur náið með stofnendum og söluteymi og hefur mikið sjálfstæði til að móta eigin verkefni.

Starfið hentar vel fyrir reyndan aðila í markaðsmálum, sem tekur mikið frumkvæði og hefur áhuga á taka þátt í uppbyggingu nýs vörumerkis á alþjóðlegum vettvangi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hanna og keyra samfélagsmiðlaauglýsingar og herferðir á mörkuðum Jónsbókar.
  • Byggja upp vörumerki Jónsbókar og tryggja samræmda ásýnd á öllum mörkuðum.
  • Skipuleggja og halda utan um viðburði, ráðstefnur og kynningar í fjölda landa.
  • Móta markaðsstefnu í samstarfi við sölu- og vöruteymi.
  • Fylgjast með árangri herferða og aðlaga þær út frá gögnum.
  • Byggja upp tengsl við miðla, samstarfsaðila og viðburðaraðila á hverjum markaði.
Menntunar- og hæfniskröfur

Þú gætir hentað ef þú

  1. Hefur háskólamenntun í tengdu fagi svo sem markaðsfræði, viðskiptafræði, samskiptum eða sambærilega reynslu.
  2. Hefur reynslu af samfélagsmiðlaauglýsingum og stafrænni markaðssetningu.
  3. Hefur reynslu af vörumerkjauppbyggingu (brand building).
  4. Hefur skipulagt og haldið utan um viðburði, gjarnan í fleiri en einu landi.
  5. Vinnur sjálfstætt, tekur frumkvæði og þrífst í hröðu og breytilegu umhverfi.
  6. Hefur gott vald á íslensku og ensku

Kostir

  1. Reynsla af markaðssetningu í B2B hugbúnaði (SaaS) eða tæknifyrirtæki.
  2. Reynsla af markaðsstarfi á Norðurlöndum eða í Mið- og Austur-Evrópu.
  3. Þekking á markaðssetningu gagnvart lögfræðingum eða öðrum sérfræðistéttum.
  4. Kunnátta í öðru norrænu máli eða tungumáli CEE-svæðisins er kostur.
Fríðindi í starfi

Við bjóðum upp á mikið sjálfstæði og bein áhrif á vöxt fyrirtækisins, hratt og lifandi sprotaumhverfi með alþjóðlegum verkefnum frá fyrsta degi og tækifæri til að byggja upp markaðsteymi.

Advertisement published16. July 2026
Application deadline31. July 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AdvertisingPathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.BrandingPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Brand management
Professions
Job Tags