

Markaðsstjóri Húsasmiðjunnar
Við leitum að markaðsstjóra til að leiða markaðsmál fyrir öll þrjú vörumerki samstæðunnar - Húsasmiðjuna, Blómaval og Ískraft. Markaðsstjóri ber höfuðábyrgð á ytri ásýnd, mörkun (branding) og vörumerkjastefnu félagsins og skapar söludrifna og orkumikla menningu byggða á gleði, krafti og fagmennsku.
Húsasmiðjan er eitt stærsta smásölufyrirtæki landsins og hefur lagt grunn að góðu samfélagi í 70 ár. Við veitum húseigendum og fagfólki í byggingariðnaði aðgang að réttu lausnunum og ráðgefandi þjónustu undir merkjum Húsasmiðjunnar, Blómaval og Ískraft á um 20 stöðum um land allt. Hjá okkur starfa 550 starfsmenn í ólíkum störfum. Húsasmiðjan er hluti af dönsku byggingavörukeðjunni BYGMA sem rekur verslanir í Danmörku, Svíþjóð, Póllandi, Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.
Gildin okkar eru: Gleði - Kraftur - Fagmennska
- Leiðir stefnumótun og framkvæmd allra markaðsaðgerða og upplifun viðskiptavina fyrir vörumerkin þrjú; Húsmiðjan, Blómaval og Ískraft – frá stórum ímyndarherferðum til markvissra söluherferða, á öllum miðlum.
- Byggir og viðheldur sterkri vörumerkjastefnu fyrir samstæðuna, tryggir skýra aðgreiningu á markaði og að hvert vörumerki hafi sína skýru rödd.
- Innleiðir mælanleg markmið í allt markaðsstarf og greinir arðsemi fjárfestinga (ROMI) til að hámarka árangur markaðsfjárfestinga.
- Leiðir þróun vefverslunar fyrir öll þrjú vörumerki samstæðunnar.
- Stýrir samskiptum við fjölmiðla og hagaðila, leiðir krísustjórnun og verndar ímynd samstæðunnar.
- Söludrifinn, hvetjandi og hugmyndaríkur leiðtogi sem hefur mikla reynslu af því að byggja upp og viðhalda sterkum tengslum og samskiptum við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk.
- Viðamikil þekking á vörumerkjastýringu fyrir ólíkar einingar.
- Reynsla af hönnun og framkvæmd stórra ímyndar- og söluherferða á bæði hefðbundnum og stafrænum miðlum.
- Færni í uppbyggingu og notkun gagna í markaðsstörfum og arðsemismælingum markaðsfjárfestinga (ROMI).
- Reynsla af stýringu almannatengsla (PR), samskiptum við fjölmiðla og krísustjórnun.
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla
- Aðgangur að orlofshúsum
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur
- Afsláttarkjör í verslunum okkar
Icelandic
English