
Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun með sjálfstæðri fjárhagsábyrgð. FS var stofnuð með lögum nr. 33, 1968 og tók formlega til starfa 1. júní sama ár. Aðild að stofnuninni eiga allir skrásettir stúdentar við Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið.
FS er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands og er aðalmarkmið að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta. Gildi FS eru: Góð þjónusta – Virk samvinna – Jákvæð upplifun – Markviss árangur.
Í dag rekur FS: Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentakjallarann, Hámu, Hámu Salatbar, Bókakaffi stúdenta og Kaupfélag stúdenta. Samanlagður starfsmannafjöldi er um 150.

Markaðsfulltrúi
Langar þig að taka þátt í að byggja upp blómlegt samfélag á háskólasvæðinu?
Félagsstofnun stúdenta leitar að drífandi og hugmyndaríkum markaðsfulltrúa.
Aðalmarkmið FS er að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta. Þjónustan er fjölbreytt en í dag rekur FS Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Hámu veitingasölu og Stúdentakjallarann.
Starfið felst í umsjón og efnissköpun á samfélagsmiðlum og vefsíðum FS auk aðstoðar við innri miðlun og viðburðarhald.
Um er að ræða hlutastarf, sveigjanlegt eftir verkefnastöðu og samkomulagi.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og dæmi af fyrri efnissköpun ef við á.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skapa lifandi og fjölbreytt efni fyrir samfélagsmiðla og vefi FS
- Sjá um birtingu og framsetningu efnis
- Taka þátt í að móta markaðsherferðir
- Aðstoð við innri miðlun
- Aðstoð við viðburðarhald og markaðssetningu viðburða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Ríkur áhugi á háskólasamfélaginu
- Vilji til að byggja upp blómlegt samfélag
- Þekking og reynsla af efnissköpun fyrir miðla á borð við Instagram og TikTok
- Þekking og reynsla af Adobe er kostur
- Sköpunarkraftur, frumleiki og næmt auga í efnissköpun
- Góð stafræn hæfni
- Góð samskipta- og skipulagshæfni og geta til að vinna vel í hópi
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Advertisement published8. December 2025
Application deadline22. December 2025
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Sæmundargata 4-10 4R, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (7)

Verkefnastjóri markaðsmála (tímabundið starf)
Húðlæknastöðin

Verkefnastjóri markaðs- og kynningarmála Borgarsögusafns
Reykjavík - Menningar- og íþróttasvið

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Sahara

Markaðsfulltrúi
Dýrheimar

VERKEFNASTJÓRI MARKAÐS- OG KYNNINGARMÁLA
Eimur

Starf við Byggðasafn Árnesinga
Byggðasafn Árnesinga

Sölufulltrúi í heildverslun
Sport Company ehf.