

Leitum að öflugum geislafræðingi til Myndgreiningar Hjartaverndar
Myndgreining Hjartaverndar leitar að öflugum og metnaðarfullum geislafræðingi í fullt starf. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða reynslu af segulómun og tölvusneiðmyndum og vill starfa í fjölbreyttu og faglega metnaðarfullu umhverfi.
Starfið spannar bæði klíníska myndgreiningu og myndgreiningu tengda vísindarannsóknum. Hjá okkur færðu tækifæri til að nýta reynslu þína, takast á við fjölbreytt verkefni og taka virkan þátt í þróun og umbótum á starfseminni.
Við leggjum áherslu á fagmennsku, vandaða þjónustu, gott samstarf og jákvæðan starfsanda.
• Framkvæmd myndgreiningarrannsókna, einkum segulómana og tölvusneiðmynda
• Þátttaka í myndgreiningu vegna vísindarannsókna
• Undirbúningur og upplýsingagjöf til þeirra sem koma í rannsókn
• Mat á myndgæðum og ábyrgð á faglegri framkvæmd rannsókna
• Vinna samkvæmt rannsóknarferlum, gæða- og öryggiskröfum
• Virk þátttaka í teymisvinnu og gæðastarfi
• Þátttaka í þróun og umbótum á myndgreiningarþjónustu
• Íslenskt starfsleyfi geislafræðings
• Reynsla af segulómun og tölvusneiðmyndum
• Faglegur metnaður, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
• Mjög góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
• Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi
• Frumkvæði, jákvæðni og lausnamiðuð nálgun
• Áhugi á faglegri þróun, nýjungum og vísindastarfi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð kunnátta í íslensku og ensku
Við bjóðum fjölbreytt og spennandi starf hjá öflugu teymi í faglegu og metnaðarfullu starfsumhverfi.
Starfið er að mestu unnið í dagvinnu, en einnig eru tækifæri til kvöld- og helgarvinnu fyrir þá sem hafa áhuga.
Hjá Myndgreiningu Hjartaverndar færðu tækifæri til að starfa bæði við klíníska myndgreiningarþjónustu og vísindarannsóknir, þróa þekkingu þína og taka virkan þátt í áframhaldandi þróun starfseminnar.
Icelandic
English