Fagrabrekka
Fagrabrekka
Fagrabrekka

Leikskólastjóri óskast í leikskólann Fögrubrekku

Leikskólinn Fagrabrekka hóf starfsemi sína 22. desember 1976. Fagrabrekka er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum eins árs til sex ára. Starfað er eftir hugmyndafræði Reggio Emilia sem kennd er við samnefnda borg á Ítalíu.

Megin áhersla er lögð á skapandi starf í öllum listgreinum, einnig er lögð áhersla á lýðræðisleg vinnubrögð starfsfólks og barna og getu barna til að afla sér reynslu og þekkingar á sínum eigin forsendum. Tónlist og hreyfing er rauði þráðurinn í starfinu sem stuðlar að vellíðan og hefur í för með sér gleði og ánægju. Einkunnarorð leikskólans virðing, gleði og frumkvæði eru ávallt í forgrunni.

Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður, umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Leikskólastjóri er leiðtogi skólans, veitir faglega forystu og býr yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsfólk leikskólans og menntasvið Kópavogsbæjar.

Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðunni okkar: https://fagrabrekka.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi leikskólans og að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans
  • Vera faglegur leiðtogi leikskólans sem deilir verkefnum og ábyrgð til starfsfólks í samræmi við skólanámskrá
  • Rekstrarleg ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar
  • Ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
  • Ábyrgð á foreldrasamstarfi
  • Upplýsingamiðlun til deildarstjóra leikskóladeildar og menntasviðs Kópavogsbæjar
  • Kynna sér nýjungar í starfi, miðla þekkingu til starfsfólks og hvetja til þróunar og nýbreytni í skólastarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Sérhæfð hæfni á leikskólastigi, sem felur í sér a.m.k. 90 ECTS námseiningar sem tengjast aðalnámskrá leikskóla og menntunarfræðum leikskóla
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
  • Reynsla af rekstri leikskóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana æskileg
  • Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Advertisement published10. July 2026
Application deadline26. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Fagrabrekka 26, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags