Deloitte
Deloitte
Deloitte

Lausnamiðaður ráðgjafi í Tækniráðgjöf Deloitte

Tækniráðgjöf Deloitte leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við breiðan hóp sérfræðinga sem sinna fjölbreyttum ráðgjafaverkefnum fyrir viðskiptavini sína dag frá degi í mismunandi geirum atvinnulífsins.

Í starfi þínu sem ráðgjafi (Business Analyst) í Tækniráðgjöf Deloitte muntu njóta þín ef þú ert drífandi að eðlisfari, býrð yfir mikilli greiningarfærni og ef þér finnst spennandi að takast á við og leysa vandamál t.d. tengd ferlum, rekstri og tækni. Þú lærir af víðtækri þekkingu og reynslu reyndari ráðgjafa á þínu sviði. Starfið hentar vel þeim sem hafa nýlokið eða nýlega lokið námi og eru áhugasöm um að stíga sín fyrstu skref í ráðgjöf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú vinnur að og styður við verkefni reyndari ráðgjafa. Dæmi um verkefni þín eru:

  • Greining áskorana og úrlausn: Greina flókna viðskiptaferla og áskoranir og koma með tillögur að lausnum í rekstri viðskiptavina okkar.
  • Samskipti við viðskiptavini: Hjálpa til við að greina þarfir viðskiptavina og miðla til þeirra lausnum með áhrifaríkum hætti.
  • Kynning á niðurstöðum: Að umbreyta flóknum málefnum eða úrlausnarefnum yfir í skýrar og markvissar kynningar eða skýrslur.
  • Önnur tilfallandi verkefni, svo sem aðstoð við kynningar og framsetning gagna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi t.d. verkfræði, viðskiptafræði eða tölvunarfræði
  • Þekking á algengum kerfum innan upplýsingatækni (t.d. fjárhagskerfum) er kostur
  • Greiningarfærni: Gagnrýnin hugsun og færni til að greina flókin viðfangsefni og sjá leiðir til úrlausnar
  • Forvitni: Það er þér eðlislægt að kynna þér ólík viðfangsefni, tækni og aðferðafræði. Þú hefur gaman að því að takast á við ný og krefjandi verkefni.
  • Samskiptafærni: Færni til að setja þig í spor viðskiptavina og geta átt í reglulegum samskiptum við fjölbreyttan hóp þeirra. Geta kynnt hugmyndir með einföldum, skýrum og áhrifaríkum hætti.
  • Þjónustulund: Færni til að setja þig í spor viðskiptavina og hafa þeirra þarfir að leiðarljósi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Ef þú hefur vilja til að vaxa, forvitni og færni til að setja þig inn í ólíka málaflokka og metnaður til að þróast í starfi þá viljum við heyra í þér.

Fríðindi í starfi
  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Styrki til foreldra
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfboðaverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi.

Starfsþróun þín

  • Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („Buddy-kerfi“)
  • Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
  • Þú verður með reyndan Coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
  • Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
  • Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum.
Advertisement published23. September 2025
Application deadline6. October 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IT project managementPathCreated with Sketch.Customer service
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags