Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Grunnskólinn í Borgarnesi - kennarar óskast til starfa fyrir skólaárið 2026-2027

Grunnskólinn í Borgarnesi auglýsir eftir umsjónakennurum á yngsta- og miðstigi ásamt dönskukennara á mið- og elsta stigi fyrir skólaárið 2026-2027.

Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með um 330 nemendur og 65 starfsmenn. Góður starfsandi, samheldni og jákvæð samskipti einkenna starfsmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi.

Skólinn vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar þar sem áhersla er lögð á velferð nemenda. Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda. Grunnskólinn í Borgarnesi er teymiskennsluskóli og vorið 2026 lýkur innleiðingarferli skólans á leiðsagnarnámi.

Gildi skólans eru sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag náms og kennsla nemenda
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að velferð og öryggi nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Teymisvinna 
  • Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi
  • Jákvæðni og faglegur metnaður
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
  • Afsláttur hjá Símanum
  • Afsláttur á bókasafninu
Advertisement published30. March 2026
Application deadline13. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Gunnlaugsgata 13, 310 Borgarnes
Type of work
Professions
Job Tags