
APRÓ
APRÓ er nútímaupplýsingatæknifyrirtæki byggt á grunni þriggja leiðandi íslenskra tæknifyrirtækja: Andes, Prógramm og Miracle. Með yfir 80 framúrskarandi sérfræðinga sameinum við áratugareynslu og nýjustu tækniþekkingu í hugbúnaðarþróun, skýjaþjónustu, gagnatækni og gervigreind.
Við erum stolt af því að vinna að verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið, með fjölbreyttum viðskiptavinum – allt frá stórum stofnunum til nýsköpunarfyrirtækja. Hjá APRÓ finnur þú vinnustað þar sem samvinna, faglegur vöxtur og vellíðan starfsfólksins eru í forgrunni.

Gervigreindar- og gagnafræðingur
Brennur þú fyrir gervigreind og vilt nýta tæknina til að leysa raunveruleg verkefni?
APRÓ leitar að lausnamiðuðum sérfræðingi í hagnýtri gervigreind. Starfið snýst um að nýta gervigreind í raunverulegum verkefnum fremur en grunnrannsóknum. Við leitum að einstaklingi sem kann að beita stórum mállíkönum (LLMs), getur smíðað snjalla agents og þróað agentic kerfi sem skapa áþreifanlegt virði fyrir viðskiptavini okkar.
Viðkomandi verður hluti af framsæknu teymi þar sem tæknilegur metnaður og nýsköpun eru í forgrunni. Teymi sem tengir saman gögn og gervigreind til að sjálfvirknivæða ferla og bæta þjónustu hjá viðskiptavinum APRÓ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hagnýting stórra mállíkana (LLMs) í viðskiptaumhverfi
- Þróun, innleiðing og uppsetning á AI Agents og spjallmennum
- Samtenging gervigreindar við gögn og kerfi viðskiptavina (t.d. RAG)
- Gagnagreining og undirbúningur gagna fyrir gervigreindarvinnslu
- Greina tækifæri til sjálfvirknivæðingar hjá viðskiptavinum
- Fylgjast með nýjungum í gervigreind (OpenAI, Anthropic, Google o.fl.)
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi (hugbúnaðarverkfræði, gagnatækni o.þ.h.)
- Yfirgripsmikil reynsla af Python og skýjaumhverfum (AWS, Azure eða Google)
- Áhugi á hagnýtingu gervigreindar í viðskiptum
- Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að vinna í teymi
-
Frumkvæði í að þróa nýjar lausnir og tækifæri fyrir viðskiptavini
-
Góð enskukunnátta er skilyrði, íslenskukunnátta kostur
Fríðindi í starfi
- Kaupréttaráætlun
- Sveigjanlegur vinnutími
- Árlegur heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- Mötuneyti, drykkir og snarl á vinnustað
- Starfsmannafélag og reglulegir viðburðir
Advertisement published12. December 2025
Application deadline12. January 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicOptional
Location
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
AWSAzureData analysisArtificial intelligenceGoogle CloudPython
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Kerfisfræðingur
Helix Health

Software Development Engineer
Nox Medical

Gervigreindar- og gagnafræðingur (junior staða)
APRÓ

Verkefnastjóri í Lánastýringu
Íslandsbanki

Tæknimaður á Sauðárkróki
OK

OK leitar að reynslumiklum kerfisstjóra
OK

Delivery Lead (Scrum Master)
Embla Medical | Össur

Technical Consultant
LS Retail

Ertu lausnamiðaður tæknisérfræðingur sem hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum?
Háskólinn á Bifröst

Data Quality Engineer
Arion banki

Vöru- og verkefnastjóri Boost.ai
Advania

Sérfræðingur í Power Platform og stafrænni umbreytingu
Advania