
exa nordic
exa nordic er ráðgjafarfyrirtæki á sviði mannvirkjahönnunar sem var stofnað út frá þeirri hugsjón að efla samstarf verkfræðinga, arkitekta og landslagsarkitekta. Með það að leiðarljósi bjóðum við upp á mannvirkjahönnun og verkefnastjórnun þar sem rík áhersla er lögð á notagildi, upplifun notenda, sjálfbærni og hagkvæmni í framkvæmd og rekstri.
Í nánu samstarfi við arkitekta, landslagsarkitekta og aðra sérfræðinga leggjum við áherslu á að virkja sérfræðiþekkingu verkfræðinga við mótun verkefna allt frá fyrstu stigum. Þannig stuðlum við að heildstæðri hönnun þar sem verkfræði, arkitektúr og landslag vinna saman að lausnum sem auðga umhverfi sitt, falla vel að aðstæðum og byggja á traustum verkfræðilegum grunni.

Gatna- og veghönnuður
exa nordic leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingum til þess að styrkja okkar teymi sérfræðinga í samgönguinnviðum. Starfið felur í sér gatna- og veghönnun og tengda ráðgjöf í verkefnum af fjölbreyttum toga.
Framundan bíða áhugaverð og krefjandi samgönguverkefni á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Starfið býður upp á alþjóðlegt samstarf við erlenda sérfræðinga á sviði gatna- og veghönnunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun gatna og vega
- Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlana
- Verkefnastjórnun
- Önnur almenn verkfræðiráðgjöf eins og undirbúningur og eftirfylgni með verkframkvæmdum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- B.Sc. próf í verkfræði/tæknifræði.
- Að lágmarki 2 ára starfsreynsla á sviði gatna- og veghönnunar.
- Reynsla í notkun hönnunar- og teikniforrita, t.d. Revit, Tekla, AutoCAD Civil.
- Gott vald á íslensku og ensku.
- Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar, metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Þekking og reynsla á burðarvirkjahönnun er kostur.
- Þekking og áhugi á sjálfbærni er kostur.
Advertisement published5. October 2026
Application deadline23. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Kristínargata 1
Type of work
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Tækjasérfræðingur – uppsetning, þjónusta og þjálfun
DTE

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Field Service Specialist (Service, Build & Enablement)
DTE

Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankinn

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Deildarstjóri lagna og loftræsinga / Head of Discipline HVAC
COWI

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Mechatronics Engineer
Laki Power

Sérfræðingur í tækniþróun og nýsköpun
Orka náttúrunnar

Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur
Stálvík ehf