
Félkó
Félagsmiðstöðvarnar í Kópavogi eru níu talsins og eru þær staðsettar í hverjum grunnskóla í Kópavogi. Í félagsmiðstöðunum er boðið upp á uppbyggilegt félagsstarf fyrir 10-16 ára börn og unglinga. Áhersla er lögð á að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagalegs stuðnings og að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá.
Kópavogsbær er barnvænt sveitarfélag. Félagsmiðstöðvar Kópavogs hafa greinar barnasáttmálans að leiðarljósi í öllu sínu starfi, og vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og ungmenni.
Starf á vegum félagsmiðstöðva er í eðli sínu forvarnarstarf þar sem unnið er með viðhof og atferli unglinga í átt til heilbrigðs lífstíls og virkni í samfélaginu. Félagsmiðstöðvastarfinu er jafnframt ætlað að styðja við félagsfærni, sjálfseflingu, sköpun og heilbrigði. Í félagsmiðstöðvastarfi er einnig lögð áhersla á forvarnir gegn óæskilegri hegðun en í þeim reglum sem gilda í starfi félagsmiðstöðva er t.d. skýr afstaða tekin gegn allri vímuefnaneyslu og annarri neikvæðri/óæskilegri hegðun.
Unnið er í klúbbum, sértæku hópastarfi, opnu starfi og tímabundnum verkefnum. Auk þess standa félagsmiðstöðvarnar fyrir fjölbreyttum sameiginlegum viðburðum eins og dansleikjum, rafíþróttamótum, íþróttaleikum, söng-og danskeppni, hönnunarsamkeppni og stuttmyndahátíð.

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðvum Kópavogsbæjar
Félagsmiðstöðvar Kópavogs óskar eftir að ráða inn frístundaleiðbeinendur í hlutastarf á komandi starfsári, með möguleika á áframhaldandi starfi. Um er að ræða dag- og kvöldstarf með börnum á bilinu 10-16 ára.
Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi. Hann hefur umsjón með og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar-, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvanna. Hann vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.
Æskilegt að umsækjendur sé á 20. aldursári eða eldri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur og hefur umsjón með ákveðnum hópum, verkefnum og viðburðum tengdum menningar-, félags- og tómstundastarfi í félagsmiðstöðvum í samstarfi við forstöðumann og aðra starfsmenn.
- Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi.
- Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
- Vinnur samkvæmt 1. og 2. stigs forvörnum í öllu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
- Vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og stuðlar að því að börn og unglingar eigi greiðan aðgang að lýðræðislegum ákvörðunum um starfsemi félagsmiðstöðvar.
- Hefur umsjón með skipulögðu frístundastarfi ólíkra hópa barna og unglinga í samræmi við þeirra þarfir.
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og fellur undir hans starfssvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Diplómanám í tómstundafræðum eða sambærilegu námi æskilegt.
- Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Kunnátta í íslensku og ensku æskileg.
Advertisement published1. July 2026
Application deadline22. July 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
ProactiveIndependence
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Aðstoðarforstöðumaður frístundaheimilisins Vinafell
Fellaskóli

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Frístundaheimili - stuðningsfulltrúi og frístundaleiðbeinandi
Seltjarnarnesbær

Deildarstjóri óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Aðstoðarkona óskast í afleysingarstarf á Akureyri
NPA miðstöðin

Frístundaleiðbeinandi í Félagsmiðstöðina Hyldýpi í Eyjafjarðarsveit
Eyjafjarðarsveit

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Umsjónarmaður frístundar á Hvanneyri
Borgarbyggð

Glerárskóli: Frístundafulltrúi í grunnskóla
Akureyri