Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Frístundafulltrúi í grunnskóla

Við Glerárskóla er laus til umsóknar 70 - 100% staða frístundafulltrúa.

Starfið er til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu og er ráðið í stöðuna frá ágúst 2026.

Vinnutíminn er alltaf til kl 16:15 hvern virkan dag.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.

Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.

Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við annað starfsfólk, stjórnendur skólans og forráðamenn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Frístundafulltrúi ber faglega ábyrgð á starfsemi frístundar og hefur umsjón með starfinu sem unnið er að skólatíma loknum
  • Starfið felur í sér umsjón með nemanda/nemendum
  • Frístundafulltrúi þarf að sjá um skráningar í tölvukerfi og vera í samvinnu við kennara yngstu nemenda skólans
  • Frístundafulltrúi ber ábyrgð á því að koma upplýsingum um starfsemi frístundar til forráðamanna og vera í samskiptum við þá
  • Frístundafulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra forvarna- og frístundamála skólans og skólastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og ánægja af starfi með börnum er æskileg
  • Þekking á frístundastarfi er kostur
  • Frumkvæði og samstarfsvilji
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Advertisement published16. July 2026
Application deadline4. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags