Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)

Forstöðumaður - frístundaheimilið Stjörnuland

Frístundaheimilið Stjörnuland er starfrækt undir frístundamiðstöðinni Brúnni sem er meðal annars með tíu frístundaheimili í Árbæ, Grafarholti og Grafarvogi.


Frístundamiðstöðin Brúin og frístundaheimilið Stjörnuland óska eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi. Markmið starfsins er að veita 6 – 9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls.


Frístundaheimilið Stjörnuland er staðsett í Ingunnarskóla, Maríubaug 1, 113 Reykjavík.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
  • Starfsmannamál.
  • Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við deildarstjóra, starfsfólk og börn út frá viðmiðum og starfsreglum SFS.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
  • Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar, eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Reynsla af félags- og tómstundastarfi.
  • Reynsla af stjórnun.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skipulags og stjórnunarhæfileikar.
  • Góð færni í samskiptum.
  • Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta.
Advertisement published4. June 2025
Application deadline18. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Frístundaheimilið Stjörnuland
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags