Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

Fjármálastjóri þjóðgarðsins á Þingvöllum

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum leitar að öflugum og reynslumiklum fjármálastjóra til að koma til starfa í lifandi og kviku starfsumhverfi. Fjármálastjóri starfar með öflugu teymi sem stýrir daglegum rekstri þjóðgarðsins en ber ábyrgð á bókhaldi, fjárhagslegri áætlana- og skýrslugerð og samskiptum við ytri aðila opinbera og einkaaðila vegna fjármála þjóðgarðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjárhagsáætlana- og skýrslugerð, gerð greiðsluáætlana og eftirlit með kostnaði.

  • Yfirumsjón með fjárreiðum, innheimtu og uppgjörum.

  • Yfirumsjón með bókhaldi, afstemmingum og gerð ársreikninga.

  • Upplýsingagjöf og samskipti við fagráðuneyti og aðra opinbera aðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.

  • Þekking og reynsla af vinnu með fjárhags- og bókhaldskerfum ríkisins t.d. Oracle og Akra.

  • Þekking og reynsla af bókhalds- og sölukerfum t.d. LS.One og DK.

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.

  • Farsæl stjórnunarreynsla af störfum á vegum hins opinbera er kostur.

  • Metnaður, frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í starfi.

  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og til að starfa í teymi.

  • Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn yfir fjölmörg verkefni.

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti.

Advertisement published6. June 2025
Application deadline10. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Þingvellir 170169, 801 Selfoss
Type of work
Professions
Job Tags